Viðskipti innlent

Sjóðsstjóri og miðlari ákærðir fyrir markaðsmisnotkun

Valur Grettisson skrifar
Daníel Þórðarson var sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs Kaupþings þegar hann á að hafa stundað markaðsmisnotkun. Hann neitar sök.
Daníel Þórðarson var sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs Kaupþings þegar hann á að hafa stundað markaðsmisnotkun. Hann neitar sök.

Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, Daníel Þórðarson hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Þá hefur Stefnir Agnarsson, sem þá starfaði sem miðlari í skuldabréfamiðlun Kaupþings, einnig verið ákærður fyrir sama brot.

Mönnunum tveimur er gefið sök að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista alls sex sinnum frá janúar til febrúar á síðasta ári. Um var að ræða fimm milljón króna kauptilboð í hvert skipti sem voru lögð fram í Kauphöll Íslands á mánaðartímabili. Tilboðið hafði áhrif á dagslokaverðið og þar með bjuggu þeir til falska eftirspurn auk þess sem verð bréfanna var misvísandi, eins og það er orðað í ákæruskjali.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Daníel mætti fyrir dóm og neitaði sök en Stefnir er staddur erlendis. Af þeim sökum verður fyrirtaka ekki í málinu fyrr en í maí.

Málið er eitt fyrsta sakamálið vegna brota í aðdraganda bankahrunsins. Töluverð umræða hefur verið um að í undanfara bankahrunsins, hafi verðbréfamiðlarar reynt að halda gengi bréfa í stóru bönkunum þremur og öðrum félögum uppi, með svipuðum aðferðum og hér um ræðir. Verði Daníel og Stefnir sakfelldir þá geta þeir búist við fangelsi, allt að sex árum samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×