Vilja að Reykjavíkurborg leggi í átak í viðhaldsframkvæmdum 17. febrúar 2009 16:16 Dagur B. Eggertsson og félagar hans í minnihlutanum vilja átak í viðhaldsframkvæmdum.
Samfylkingin og Vinstri græn lögðu fram ítarlega tillögu um átak í viðhaldsframkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða hf. á fundi borgarstjórnar í dag. Tilgangurinn er bregðast við alvarlegri stöðu og atvinnuleysi í byggingariðnaði. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir að komist tillögurnar til framkvæmda geti skapast á þriðja hundrað ný störf við margs konar viðhaldsverkefni. „Tillagan byggir á áformum ríkisstjórnarinnar að endurgreiða virðisaukaskatts vegna viðhaldsvinnu við íbúðarhúsnæði að fullu og lagt er til að sú breyting nái einnig til opinberra bygginga. Þá er lagt til að viðhaldsverkefnum áranna 2012-2014 verði flýtt til að styrkja atvinnustig árin 2009-2011," segir Dagur í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum. Dagur segir að tillögugerðin sé framhald vinnu og samráðs sem fram hafi farið við stéttarfélög og samtök í byggingariðnaði á vegum borgarstjórnarflokka minnihlutans. Sú vinna hafi haft að leiðarljósi að leiða fram raunveruleg svör og lausnir við þröngri stöðu í fjárhag Reykjavíkurborgar og á vinnumarkaði. „Fyrstu ávextir þeirrar vinnu birtust þegar við framlagningu fjárhagsáæltunar þar sem Samfylking og VG lögðu fram endurskoðaða forgangsröðun framkvæmda í þágu verkefna sem skapa myndu sem flest störf. Þetta hefur enn ekki verið gert," segir Dagur í tilkynningunni.
Mest lesið Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Kennarar óttast framkvæmd símafrís Innlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Innlent Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Innlent Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Innlent Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Innlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Innlent Fleiri fréttir Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Plastbarkadómi áfrýjað og hvalavinir ósáttir við ráðherra Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Sjá meira