Innlent

Ómar boðaði fagnaðarerindið á Klörubar

Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, ásamt fjölmörgum Íslendingum á Klörubar fyrr í dag.
Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, ásamt fjölmörgum Íslendingum á Klörubar fyrr í dag. MYND/Sturla
Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, reifaði skoðanir sínar á þjóðmálunum og þá sér í lagi til náttúruverndar á fjölmennum fundi á Klörubar á Kanaraí fyrr í dag. Á annað hundrað manns komu saman til að hlýða á Ómar og beindu fjölmargir spurningum til hans, þar á meðal varðandi atvinnumál og álversuppbyggingu.

Sturla S. Þórðarson, sem stóð fyrir fundinum, sagði Ómar hafa lagt áherslu á umhverfismál og náttúrvernd í erindi sínu. Ómar sagðist tala fyrir munn milljóna Íslendinga sem eigi eftir að búa á Íslandi í framtíðinni.

Fundir um samfélagsmál eru haldnir á hverjum laugardegi á Klörubar á vegum framsóknarmanna. Meðal framsögumanna á fundum félagsins undanfarna mánuði hafa verið Guðni Ágústsson fyrrum formaður Framsóknarflokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins og Jón Magnússon fyrrverandi þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×