Innlent

Sigmundur og Guðjón farnir, forystumenn funda enn

Forystumenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna funda enn í Alþingishúsinu um myndun nýrrar ríkisstjórnar.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins mætti til fundar um fimm leytið en er nú farinn af fundinum. Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins fundar nú með formönnum VG og Samfylkingar.

Að fundi loknum ítrekaði Sigmundur Davíð við fréttamenn að Framsóknarflokkurinn styddi minnihlutastjórn VG og Samfylkingar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yfirgaf fundinn um stundarsakir og þegar hún kom út sagði hún fréttamönnum að góður gangur væri í viðræðunum.

Guðjón sagði að loknum fundinum að mikil vinna væri enn framundan.

Gert er ráð fyrir að Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndir verji væntanlega minnihlutastjórn falli.

Búist er við tilkynningu frá formönnunum um klukkan sex eða hálfsjö.

Þegar Ingibjörg ræddi við fréttamenn sagðist hún vera bjartsýn á að næðist saman á milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Eftir að Ingibjörg hvarf af fundinum kom Steinunn Valdís Óskarsdóttir þingmaður Samfylkingar inn á fundinn en hún vék af fundi þegar Ingibjörg sneri aftur.

Steingrímur J. Sigfússon formaður VG sagði við fréttamenn að ætlunin væri að reyna að mynda ríkisstjórn og að taka eins skamman tíma og hægt er í það. Hann sagðist vonast til þess að þessir tveir flokkar næðu saman um málefnin enda væru svipaðar áherslur í mörgum málum. Þó væri alls óvíst hve langan tíma það muni taka að mynda ríkisstjórnina.

Fyrir þennan fund hittist þingflokkur VG í Vonarstræti þar sem farið var yfir þau málefni sem flokkurinn ætlar að leggja áherslu á í viðræðunum.

Þau Ingibjörg Sólrún, Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sitja fundinn fyrir hönd Samfylkginar.

Fyrir hönd Vinstri grænna eru á fundinum auk Steingríms þau Ögmundur Jónasson þingflokksformaður og Katrín Jakobsdóttir varaformaður flokksins.

 

 

 

 





































Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×