Steingrímur: Ég held að Geir sé alveg ómarinn á öxlinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. nóvember 2008 13:09
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna hafnar því með öllu að hafa slegið til forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í gær. „Nei nei, það er fjarri öllu lagi. Ég held að Geir Haarde sé algjörlega ómarinn á öxlinni," segir Steingrímur þegar að hann er spurður út í málið. „Enda legg ég það ekki í vana minn. Ég get tekið fast á mönnum með orðsins brandi en ég hef ekki lagt fyrir mig handalögmál í stjórnmálum," segir Steingrímur. Það var í umræðum um vantrauststillögu á ríkisstjórnina sem umdeilt atvik náðist á vefmyndavélar Alþingis. „Björn Bjarnason bar á mig algjörlega óréttmætar sakir. Hann var í raun með eitthvað slúður um það að ég stæði sérstaklega gegn því að rannsóknarnefndin kæmist á koppinn. Ég sit náttúrulega ekkert þegjandi undan slíku kjaftæði frá honum," segir Steingrímur. Hann hafi því mótmælt því harkalega að Björn væri að dylgja um þetta enda hafi Björn ekki setið neina fundi um þetta mál. Steingrímur segir jafnframt að sér sé ekki kunnugt um að aðrir nefndarmenn beri þessa sögu. Steingrímur segir að hann hafi svo gengið að Geir og spurt hvort þetta væri frá honum komið. Hann hafi hins vegar ekki slegið til hans. Smelltu hér til að sjá myndskeið af atvikinu.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Fleiri fréttir Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Sjá meira