Sendiráðum lokað og sparað í varnar- og þróunarsamvinnumálum 12. nóvember 2008 15:33
Sendiráðum Íslands í Pretoríu og Róm verður lokað á næsta ári og sömuleiðis sendiskrifstofu fastanefndar Íslands við Evrópuráðið í Strassborg ásamt einni af sendiskrifstofum Þróunarsamvinnustofnunar. Þetta er liður í sparnaðaraðgerðum utanríkisráðuneytisins vegna efnahagskreppunnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kynnti þessar tillögur á blaðamannafundi í dag. Samtals nemur sparnaður ráðuneytisins um 2,2 milljörðum króna eða um fimmtungi miðað við fjárlagafrumvarp næsta árs. Auk lokunar áðurnefndra sendiskrifstofa á næsta ári stendur til að loka fleirum árið 2010. Þá mun ráðuneytið skoða sérstaklega sparnað í húsnæðiskosti sendiskrifstofa og er stefnt að því að skila ríkissjóði söluhagnaði frá 500 milljónir til milljarð á næsta ári. Tveir sendiherrar láta af embættum í upphafi árs 2009 og fyrir liggur að aðrir fjórir láti af embætti síðar á árinu. Veruleg fækkun verður því á næsta ári í hópi sendiherra. Útgjöld til varnarmála dregin saman Þá verða útgjöld til varnarmála lækkuð um 257 milljónir króna á næsta ári og útgjöld til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu verða dregin saman tímabundið þótt áfram verði stefnt að því að ná markmiðum alþjóðasamfélagsins til lengri tíma litið. Með niðurskurðinum lækkar kostnaður vegna þróunarsamvinnu um ríflega 1,6 milljarða króna. Framlag til þróunarsamvinnu verður 0,24 prósent af þjóðarframleiðslu í stað 0,35 prósent eins og stefnt hafði verið að. Enn fremur verður þátttaka Íslands í alþjóðlegum verkefnum endurmetin. Má sem dæmi nefna þátttöku Íslands í heimssýningunni í Sjanghæ árið 2011. Kostnaður vegna hennar verður um 30 prósent af því sem upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og njótum við velvildar Kínverja sem auðveldar þátttöku í sýningunni. „Þá hefur skipulag utanríkisráðuneytisins verið endurskoðað og öðlast breytingarnar gildi frá og með deginum í dag. Skrifstofur ráðherra og ráðuneytisstjóra hafa verið sameinaðar í því skyni að styrkja yfirstjórn ráðuneytisins og ná fram frekari hagkvæmni í starfsemi utanríkisþjónustunnar. Skrifstofan heyrir undir ráðuneytisstjóra. Kristínu A. Árnadóttur sem skipuð hefur verið sendiherra hefur verið falið að stýra hinni nýju skrifstofu yfirstjórnar," segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira