Sumitomo Mitsui í mál við bæði Kaupþing og Glitni

Vísir Viðskipti 11. nóvember 2008 16:27
Sumitomo Mitsui í mál við bæði Kaupþing og Glitni

Sumitomo Mitsui, þriðji stærsti banki Japans, hefur höfðað mál gegn bæði Kaupþingi og Glitni fyrir dómstól í London. Málshöfðunin er vegna lánaveitinga sem Sumitomo stóð að til Kaupþings og Glitnis ásamt öðrum bönkum í Japan, Ástralíu og á Nýja Sjálandi.

Með þessari málshöfðun eru a.m.k. sex dómsmál í uppsiglingu í London gegn íslensku bönkunum en það eru aðilar frá Þýskalandi, Asíu og Ástralíu sem standa að þeim.

Samkvæmt frétt um málið á Bloomberg-fréttaveitunni hefur stærsti banki Japans, Mitsubishi einnig höfðað mál gegn Kaupþingi en Mitsubishi hafði forgöngu um sambankalán til Kaupþings. Þátttakendur í láninu voru auk japanska bankans, Cathay United Bank, Malayan Banking Bhd og Commonwealth Bank.



Fleiri fréttir - Viðskipti

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Sumitomo Mitsui í mál við bæði Kaupþing og Glitni