Gríðarmiklar olíu- og gaslindir á Drekasvæðinu 10. nóvember 2008 18:58
Sérfræðingar norska olíufélagsins Sagex Petrolium telja að á Drekasvæðinu sé álíka mikil olía og í norska hluta Norðursjávar. Verðmætin eru talin svo mikil að þau jafngilda öllum opinberum útgjöldum á Íslandi í fjögurhundruð ár. Íslensk stjórnvöld bjóða út rétt til leitar og olíuvinnslu á svæðinu eftir tvo mánuði. Þetta kemur fram í fréttaskýringaþættinum Kompás á Stöð 2 í kvöld.Framtíð Íslands gæti legið í Drekasvæðinu í norðausturhorni íslensku efnahagslögsögunnar, ef marka má sérfræðinga norska olíufélagsins Sagex Petrolium. Gunnlaugur Jónsson, sem sæti á í stjórn fyrirtækisins, segir starfsmenn þess handvissa um að þarna sé olía og Drekasvæðið verði næsti Norðursjór. Þar sé álíka mikil olía og í norskahluta Norðursjávar. Eina spurningin er hversu margar holur þurfi að bora til að ná í hana.Sagex-menn eru þeir aðilar sem einna mest hafa rýnt í gögn af Drekasvæðinu en þeir voru áður ráðgjafar íslenskra stjórnvalda. Sérfræðingar Orkustofnunar eru sammála því að þarna séu verðmæti. Kristinn Einarsson, verkefnisstjóri olíuleitar hjá Orkustofnun, segir ljóst að þarna sé olía og/eða gas. Hljóðbylgjumælingar sýni slík merki og viðbótargögn sem fengust í sumar með fjölgeislamælingum rannsóknaskips Hafrannsóknastofnunarinnar styðji það enn frekar.Ef leit á Drekasvæðinu gengur vel má gera menn ráð fyrir að fyrsta olían náist upp eftir þrjú til fimm ár og þá hefjist uppbygging á norðausturhorni landsins. Gunnlaugur Jónsson hjá Sagex spáir því að þar verði mikil uppbygging á næstu fimm til fimmtán árum.
Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Innlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Sjá meira