Kreppupönk í áttunda bekk

Fréttablađiđ Tónlist 08. nóvember 2008 06:00
GarđabćjaRpönkarar sem hlusta á FM957 Litlu grýlurnar frá vinstri – Guđlaug hljómborđsleikari, Ásdís Halla bassaleikari, Ásdís Rún og Ingveldur gítarleikari.
fréttablađiđ/arnţór
GarđabćjaRpönkarar sem hlusta á FM957 Litlu grýlurnar frá vinstri – Guđlaug hljómborđsleikari, Ásdís Halla bassaleikari, Ásdís Rún og Ingveldur gítarleikari. fréttablađiđ/arnţór

Fjórar þrettán ára stelpur kynntust pönktónlist hjá tónmenntakennaranum sínum. Á fjórum vikum tókst þeim að spila lag og fá það leikið á Rás 2.

Nýjasta pönkbandið á Íslandi er skipað fjórum þrettán ára stelpum í Sjálandsskóla í Garðabæ. Þar kennir Ólafur Schram tónmenntir og lét áttunda bekk kynnast tónlistarstílum síðustu aldar með því meðal annars að semja, æfa og taka upp eitt lag. Krakkarnir stofnuðu bönd og bjuggu til rokk-, diskó- og kántrílög auk pönksins.

„Þetta var allt mjög flott hjá þeim, en pönkhljómsveitin hitti kannski naglann best á höfuðið. Pönkið er náttúrlega sá stíll sem minnstrar kunnáttu þarf til að flytja," segir Ólafur. Stelpurnar höfðu aldrei snert hljóðfæri áður, en tókst á fjórum vikum að skila frá sér mjög sannfærandi pönklagi. Það var meira að segja leikið á Rás 2 og þar gaf útvarpskonan Linda Blöndal sveitinni nafnið „Litlu grýlurnar".

„Okkur fannst það nafn bara svolítið flott," segir söngkonan Ásdís Rún, sem trommar líka. „En við erum samt ekkert búnar að pæla í því hvort við höldum áfram. Kannski. Við hlustuðum á Rokk í Reykjavík til að læra um pönkið og leist ágætlega á þessa músik. En yfirleitt höfum við þetta bara auðvelt og hlustum á FM957."

Í laginu, „Kreppa", er ekkert verið að skafa utan af því. Þar segir meðal annars: „Ríkið er ekki heilbrigt. Gamlir verða að fara. Nýir menn koma og bjarga Íslandi!" – „Já, þeir gömlu verða að fara," segir Ásdís. „Og aðrir verða að fá tækifæri til að taka við. Annars veit ég ekki mikið um þetta sjálf. Ég hef bara heyrt mikið talað um þetta."

drgunni@frettabladid.is


Fleiri fréttir - Tónlist

Tónlist 21. maí. 2012 14:00

Nasatónleikar GusGus á DVD

"Okkur ţótti viđeigandi ađ skrásetja ţessa tónleika og gefa út fyrir ađdáendur okkar til a...  

Meira
Tónlist 16. maí. 2012 12:00

Kominn úr jakkafötunum og aftur í strigaskóna

"Ég fékk ţessa veiki aftur og af hverju ekki bara ađ kýla á ţađ?“ segir tónlistarmađ...  

Meira
Tónlist 16. maí. 2012 14:00

Háski skapar rokkstemningu

Ţungarokkssveitin Skálmöld er nú viđ upptökur á annari breiđskífu sinni, Börnum Loka. Í hl...  

Meira
Tónlist 16. maí. 2012 08:00

Ţrjú hundruđ hitta gođsögn

"Viđ erum búnir ađ reyna ađ fá hann í mörg ár og loksins hafđist ţađ,“ segir Sindri ...  

Meira
Tarot
Hugsađu ţér, eđa skrifađu spurningu og dragđu ţér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Lífiđ - Yfir / Tónlist / Kreppupönk í áttunda bekk