Skattar hækkuðu langmest á Íslandi 1. nóvember 2008 18:53
Íslendingar eru sú þjóð sem mátt hefur þola langmestar skattahækkanir af öllum þjóðum innan Efnahags- og framfarastofnuninnar, OECD, á síðasta áratug. Er nú svo komið að Ísland er komið á topp tíu listann yfir þau ríki sem þyngsta skattbyrði leggja á þegna sína.Stjórnmálamenn á Alþingi eru nú farnir að tala um að skattahækkanir séu óhjákvæmilegar. Tölur sem OECD birti fyrir hálfum mánuði sýna hins vegar að landsmenn hafa allt frá árinu 1995 mátt þola verulega þyngingu skattbyrði, úr rétt liðlega þrjátíu prósentum af vergri landsframleiðslu og vel yfir fjörutíu prósent. Bráðabirgðatölur fyrir síðasta ár sýna að skatthlutfallið var þá komið í 41,4 prósent.Efnahags- og framfarastofnunin birti einnig töflu sem sýnir hvernig skattbyrði breyttist í iðnríkjunum á einum áratug. Athygli vekur að eitt land, Ísland, sker sig algerlega úr, sem það ríki sem þyngdi skattbyrði á þegna sýna langmest af öllum iðnríkjum heims á nýjasta viðmiðunartímabili, 1995 til 2006. Ísland var eina landið með yfir tíu prósentustiga aukningu skatta. Tyrkland og Kórea komu næst með um sjö prósentastiga aukningu, en Spánn var í fjórða sæti með fjögurra prósentustiga aukningu. Meðaltal OECD var 1,2 prósentustiga aukning skatta og var skattahækkunin á Íslandi því meira en áttfalt meiri en meðaltalið.Ísland klifraði á þessum áratug hratt upp listann yfir ríki með þyngstu skattbyrðina en þar tróna nú Danmörk og Svíþjóð á toppnum. Ísland er komið á topp tíu listann og er nú í níunda sæti yfir þau ríki sem leggja á þyngstu skattana.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir „Þessi samningur var fullkomlega óboðlegur“ Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Sjá meira