Kim Jong Il hressist Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. október 2008 12:08 Er þetta hann? MYND/AP
Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, virðist vera að hressast og er nú talinn geta stjórnað landinu forfallalaust að mati leyniþjónustu Suður-Kóreu. Leiðtoginn er ekki alheill heilsu eftir heilablóðfallið sem hann fékk um miðjan ágúst en mat suðurkóresku leyniþjónustunnar er að hann sé fær um að halda um stjórnartaumana. Norður-Kóreumenn hafa neitað því staðfastlega að nokkuð ami að leiðtoganum og birtu því til stuðnings myndir af honum þar sem hann sést gera liðskönnun hjá her sínum. Efasemdir hafa hins vegar kviknað um að myndirnar séu nýjar. Einnig telur leyniþjónusta Suður-Kóreu sig hafa heimildir fyrir því að sonur Kim Jong Il, Kim Jong Nam, hafi farið til Parísar nýlega og átt þar fund með taugaskurðlækni. Læknirinn á svo að hafa ferðast til Norður-Kóreu skömmu síðar. Sumar leyniþjónustur hafa haft uppi kenningar um að Kim Jong Il sé löngu látinn en hópur tvífara gegni hlutverki hans á opinberum vettvangi. Er þetta meðal annars stutt með því að ekkert hafi sést til leiðtogans á tveggja mánaða tímabili og hafi hann til að mynda verið fjarverandi við ýmsar stórathafnir.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira