Innlent

Skera upp herör gegn ferðamannavörðum

Ari Arnórsson, Rakel Jónsdóttir og Þórunn Daðadóttir við eina vörðuna.
Ari Arnórsson, Rakel Jónsdóttir og Þórunn Daðadóttir við eina vörðuna. MYND/Stefán Helgi

Leiðsögumenn segja að vörður sem ferðamenn hlaða séu stórt vandamál í náttúru Íslands. Hópur leiðsögumanna fór á föstudaginn í ferð gagngert til þess að fella vörður, sem þeir kalla raunar vörtur.

„Þetta er mikilvæg aðgerð sem miðar að því að vekja athygli á einu versta náttúrusóðavandamáli síðari ára," segir Ari Arnórsson leiðsögumaður sem stóð fyrir vörtuhreinsun (vörðuhreinsun) meðfram Krýsuvíkurvegi. Ragnheiður Björnsdóttir, fromaður Félags leiðsögumanna segir um gott framtak að ræða. Leiðsögumennirnir Ari Arnórsson, Rakel Jónsdóttir, Stefán Helgi Valsson og Þórunn Daðadóttir um Krýsuvíkurveg í þeim tilgangi að snúa við því sem þau kalla varhugaverða þróun í ferðamennsku á Íslandi.

Hópurinn jafnaði 1200 vörtur við jörðu, langflestar við Borgarhól á Krýsuvíkurvegi. Stærsta vartan var 1,5 metri á hæð.

„Vörturnar eru miklu meira og stærra vandamál í náttúru Íslands heldur en skógarhögg í leyfisleysi, rusl, hávaði og varðeldar," segir Ari sem hyggst standa fyrir vörtuhreinsun í fleiri landshlutum. „Vörtur hlaðnar af ferðamönnum á ferðamannastöðum eru lýti í náttúrunni. Fyrir mér eru vörður í náttúrunni samskonar lýti og graff í borginni," segir Stefán.

„Vörtur eru og hafa verið vandamál á ýmsum ferðamannastöðum víðsvegar um landið um langt skeið og of lítið að gert til að stemma stigu við þeim. Hins vegar trúi ég því að fagmenntaðir leiðsögumenn og fagmenntaðir landverðir upp til hópa fordæmi vörður ferðamanna og taki virka afstöðu með náttúrunni. Það er verðugt umhugsunarefni að ferðamenn hlaða vörður á ýmsum vinsælum ferðamannastöðum í meira mæli en áður. Einkum er umhugsunarefni að vörður ná að skjóta rótum í Skaftafelli sem varð hluti Vatnajökulsþjóðgarðs 8. júní sl."





Ari sparkar niður einni vörtunni.

„Í mínum huga eru ferðamannavörtur eins og krabbamein, þegar það er byrjað heldur það bara áfram," segir Rakel Jónsdóttir. „Ég tók þátt í þessu þarfa náttúruverndarátaki vegna þess að mér þykir vænt um náttúruna eins og hún er og vil stuðla að góðri umgengni ferðamanna," segir Þórunn, eini þátttakandinn í ferðinni á föstudag sem ekki er fagmenntaður leiðsögumaður.

Ragnheiður Björnsdóttir, formaður Félags leiðsögumanna, fagnar framtaki Ara. „Það er sjálfsagt að vekja athygli á þessu vaxandi vandamáli. Mér finnst óþarfi að hlaða vörðum út um allar trissur. Reyndar finnst mér vörður eiga rétt á sér á sumum stöðum, eins og til dæmis landamerki og leiðarvísar, en alls ekki hvar sem er. Vörðuvandamálið er að sumu leyti af sama meiði og þegar ferðamenn kasta smápeningum í gjár og hveri. Hvort tveggja finnst mér mikið líti í náttúru Íslands."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×