Lífið

Fjölskyldualbúmum stolið frá pabba Bjarkar

Brotist var inn á heimili Guðmundar Gunnarssonar, formanns Rafiðnaðarsambands Íslands og föður Bjarkar tónlistarkonu, og þaðan stolið ýmsum verðmætum, þar á meðal myndaalbúum. Hann segir lögreglu verða að efla hverfagæslu til þess að koma í veg fyrir tíð innbrot.

Guðmundur bloggar um reynslu sína á Eyjunni. Þar kemur fram að brotist hafi verið inn á heimili hans um miðjan dag. Farið hafi verið inn um lítinn stofuglugga í nærri tveggja metra hæð. „Þeir fóru um allt heimilið og tóku allt það sem kalla má handhæg verðmæti eins og tölvur, myndavél, harða diska og svo var farið í gegnum náttborðin og hluti skartgripa konunnar teknir. Myndaalbúm fjölskyldunnar síðustu 20 ár horfinn, því bæði tölvunni og svo harðadrifið sem var varageymsla var stolið," segir Guðmundur.

Hann segir fyrst hafa fengið sjokk en svo hafi reiðin komið upp. Hann hafi í kjölfarið skipt um gluggalæsingar og sett upp mun öflugri til að verja innbrotum. „Það er ömurleg staðreynd að verða breyta heimili sínu í einhvers konar virki," segir Guðmundur.

Hann vísar í framhaldinu til frétta af því að lögreglumönnum hafi fækkað. Það sé einkennilegt í ljós þess hversu mikið fólki hafi fjölgað á höfuðborgarsvæðinu. „Auk þess að við erum með fjölda erlendra gesta, sem sumir hverjir hafa atvinnu af því að stunda neðanjarðarstarfsemi. Þetta hefur komið til viðbótar við hina íslensku. Á þessu verður að taka. Þessi starfsemi er orðin mjög skipulögð, þeir þjófar sem nást eru sumir hverjir með miða í vösunum þar sem eru húsnúmer og upplýsingar um að íbúar viðkomandi hús fari til vinnu og skóla kl. xx og húsið tómt til kl. xx ákveðna daga," segir Guðmundur.

Lögregluna verði að efla og bæta hverfagæslu. „Hann er borgaryfirvöldum til skammar kjallarinn sem lögreglumönnum í Grafarvogi hefur verið boðið upp á undanfarna áratugi. Friðhelgi heimilisins verður að verja," segir Guðmundur enn fremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×