Ísland spilar um verđlaun á Ólympíuleikunum

Vísir Handbolti 20. ágúst 2008 06:00
Íslensku leikmennirnir fagna sćtum sigri á Pólverjum í dag.
Íslensku leikmennirnir fagna sćtum sigri á Pólverjum í dag. Mynd/Vilhelm

Ísland vann glæsilegan sigur á Pólverjum í fjórðungsúrslitum handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking, 32-30. Ísland spilar þar með um verðlaun á leikunum.

Ísland mætir annað hvort Suður-Kóreu eða Spáni í undanúrslitum en sá leikur hefst klukkan 12.15 í dag. Leikur Íslands í undanúrslitum fer fram á föstudaginn klukkan 12.15.

Staðan í hálfleik var 19-14, íslenska liðinu í vil. Fyrri hálfleikur var glæsilegur þar sem allt gekk upp, í markvörslu, vörn og sókn.

Síðari hálfleikur var erfiðari. Pólverjar þéttu vörnina og náðu í kjölfarið að minnka muninn í eitt mark, 23-22, eftir þrettán mínútur í seinni hálfleik. En Ísland lét ekki slá sig alveg út af laginu og þegar mest þurfti skoraði íslenska sóknin og Björgvin Páll varði í markinu.

Björgvin Páll Gústavsson átti sennilega besta leik lífs síns en hann varði 23 skot í markinu, þar af eitt víti. Frammistaða hans var einfaldlega í algjörum heimsklassa.

Ísland náði aftur að komast í þriggja marka forystu en varð fyrir áfalli er Snorri Steinn brenndi af víti og Pólverjar skoruðu tvö í röð á stuttum tíma. Í stað þess að vera með fjögurra marka forystu voru Pólverjar aftur búnir að minnka muninn í eitt mark.

En sem fyrr varði Björgvin glæsilega í markinu og íslenska sóknin kláraði sitt með miklum stæl. Á síðustu mínútum leiksins var Ísland með 2-3 marka forystu og Pólverjar komust ekki nær, sama hvað þeir reyndu.

Allir áttu frábæran dag í íslenska liðinu. Það er erfitt að taka einhvern út en Alexander Petersson skoraði tvö síðustu mörk leiksins og tryggði þar með sigur íslenska liðsins. Mörkin hans voru einkar sæt.

Ingimundur og Sverre voru gríðarlega öflugir í vörninni og eiga mikið hrós skilið.

Nú bíða Spánverjar eða Suður-Kóreumenn og ljóst að Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari á mikið verk fyrir höndum að ná sínum mönnum aftur á jörðina. Leikurinn fer fram á föstudaginn klukkan 12.15.

Tölfræði leiksins:

Ísland - Pólland 32-30 (19-14)

Gangur leiksins: 1-0, 3-1, 7-4, 10-7, 14-10, 16-12, (19-14), 19-16, 21-16, 21-18, 23-20, 24-23, 27-24, 27-26, 30-27, 31-29, 32-30.

Mörk Íslands (skot):
Alexander Petersson 6 (8)
Guðjón Valur Sigurðsson 5 (7)
Snorri Steinn Guðjónsson 5/1 (9/2)
Logi Geirsson 4 (7)
Ólafur Stefánsson 4/1 (8/1)
Róbert Gunnarsson 3 (3)
Arnór Atlason 3 (6)
Sigfús Sigurðsson 1 (1)
Ingimundur Ingimundarson 1 (1)

Varin skot:
Björgvin Páll Gústavsson 23/1 (52/3, 44%, 60 mínútur)

Skotnýting: 32/50, 64%

Vítanýting: Skorað úr 2 af 3.

Mörk úr hraðaupphlaupum: 6 (Alexander 2, Guðjón Valur 2, Logi 1 og Ólafur 1).

Fiskuð víti: Snorri Steinn 2 og Róbert 1.

Utan vallar: 16 mínútur.

Rautt: Sverre Jakobsson, 59:23 (þriðja brottvísun)

Markahæstir hjá Póllandi:
Mateusz Jachlewski 6
Grzegorz Tkaczyk 6
Bartlomiej Jaszka 4
Mariusz Jurasik 4

Varin skot:
Slawomir Szmal 14/1 (46/3, 30%, 60 mínútur)

Skotnýting: 30/55, 55%

Vítanýting: Skorað úr 2 af 3.

Mörk úr hraðaupphlaupum: 5.

Utan vallar: 6 mínútur.

07.43 Ísland - Pólland 32-30

Heill sé þér, Alexander Petersson. Hann skoraði síðustu tvö mörk íslenska liðsins og tryggði þar með endanlega sigurinn. Skipti engu máli þó Sverre fengi rautt fyrir þriðju brottvísunina.

Manni er orða vant. Ég man varla hvað gerðist síðustu mínúturnar í leiknum. Ísland spilar um verðlaun á Ólympíuleikunum - það er bara þannig.

07.40 Ísland - Pólland 30-28

Ísland gat komist fjórum yfir en þá var dæmdur ruðningur á Guðjón Val. Íslenska vörnin hefur verið frábær síðustu mínúturnar og pólsku sóknirnar eru langar. Pólverjar skora að þessu sinni. Ein og hálf eftir.

07.35 Ísland - Pólland 29-27

Ótrúleg þróun. Ingimundur fékk að fjúka út af og Pólverjar gátu minnkað muninn í eitt mark. En þá varði Björgvin úr dauðafæri og Snorri skoraði af línu auk þess að fiska mann út af. En Pólverjar svara. Tæpar fjórar eftir - KOMA SVO!!!

07.29 Ísland - Pólland 27-25

Snorri Steinn var að klikka á víti sem var alger óþarfi og Pólverjar minnka muninn í tvö mörk þegar rúmar átta mínútur eru eftir. Ef ég væri ekki bundinn við þessa lýsingu væri ég sennilega búinn að slökkva á sjónvarpinu, slík er spennan.

07.25 Ísland - Pólland 27-24

Já, sóknin er að ganga ágætlega þessa stundina, sem betur fer. Ellefu mínútur eftir. Ísland verður að halda þetta út.

07.20 Ísland - Pólland 24-23

Guðmundur tekur leikhlé. Þetta hefur verið erfitt en á 13 mínútum hafa Pólverjar minnkað muninn úr fimm mörkum í eitt. Íslenska sóknin þarf að komast í gang á ný.

07.15 Ísland - Pólland 24-22

Logi fær að fjúka út af og Pólverjar ganga á lagið og minnka muninn í eitt mark. Íslensku sókninni hefur gengið illa þessar síðustu mínútur.

07.10 Ísland - Pólland 21-18

Sverre fékk brottvísun öðru sinni í leiknum og Pólverjar hafa náð upp góðum varnarleik í síðari hálfleik. Strákarnir hafa verið að skjóta Szmal markvörð í stuð sem er mikið áhyggjuefni. Nú gengur Pólverjum vel en Íslendingar verða að standa þetta af sér.

07.05 Ísland - Pólland 21-16

Pólverjar byrja síðari hálfleikinn af krafti og skora fyrstu tvö mörkin. En Íslendingar svara með tveimur mörkum á móti og Björgvin hefur farið mikinn í markinu.

06.52 Ísland - Pólland 19-14 - hálfleikur

Vá, þvílíkur fyrri hálfleikur. Þetta eru sennilega bestu þrjátíu mínútur sem íslenskt landslið hefur sýnt lengi. Það var allt frábært við þennan fyrri hálfleik. Vörn, sókn, markvarsla, baráttan og hvernig íslenska liðið brást við mótlætinu.

Fylgifiskur þess að spila svo grimma vörn er að íslensku leikmennirnir hefur fjórum sinnum verið vikið af velli. Það er ágætt að það hefur dreifst á fjóra leikmenn en þetta gæti orðið áhyggjuefni í síðari hálfleik.

En það er gjörsamlega stórkostlegt að markaskorun liðsins hefur dreifst á átta leikmenn íslenska liðsins. Björgvin hefur varið níu skot í markinu og átt stórleik.

Mörk Íslands (skot):
Snorri Steinn Guðjónsson 4/1 (6/1)
Arnór Atlason 3 (3)
Guðjón Valur Sigurðsson 3 (3)
Alexander Petersson 3 (3)
Róbert Gunnarsson 2 (2)
Logi Geirsson 2 (4)
Sigfús Sigurðsson 1 (1)
Ólafur Stefánsson 1 (4)

Varin skot:
Björgvin Páll Gústavsson 9/1 (23/2, 39%, 30 mínútur)

06.49 Ísland - Pólland 18-13

Vörnin hefur vissulega verið frábær en sóknin hefur verið hreint stórbrotin síðustu mínúturnar. Glæsilegar línusendingar hvað eftir annað og menn grimmir í fráköstin.

06.44 Ísland - Pólland 14-11

Ísland missir menn út af og Pólverjar eru grimmir að skora þessa stundina en alltaf skorar frábær íslensk sókn. Mótlætið er ekkert að hafa áhrif á íslenska liðið, það er ljóst.

Guðmundur tók leikhlé er Ísland var með boltann. Nú er ljóst að Ísland má ekki missa þetta góða forskot niður á þessum fimm síðustu mínútum fyrri hálfleiks. Ef Pólverjar jafna yrði það þó nokkuð áfall fyrir íslenska liðið sem hefur átt frábæran fyrri hálfleik.

06.38 Ísland - Pólland 11-7

Björgvin Páll er fyrsti markvörðurinn á mótinu til að verja frá Tomasz Tluczynski, vítaskyttu pólska liðsins. Vonandi að þetta mótlæti fari illa með Pólverjana. Arnór skorar í kjölfarið og forysta íslenska liðsins orðin fjögur mörk er Pólverjar taka leikhlé.

06.31 Ísland - Pólland 8-6

Ísland átti kost á að komast í fjögurra marka forystu en þá kom smá hikst í íslensku sóknina og Pólland minnkaði muninn í 7-6.

06.24 Ísland - Pólland 5-3

Vörnin er enn frábær og pólska sóknin á í miklum vandræðum. Þrjú íslensk mörk í hraðaupphlaupum til þessa en Ísland komst í 5-2 forystu.

06.20 Ísland - Pólland 3-1

Ja hérna. Þvílík draumabyrjun. Frábær íslensk vörn, tvö íslensk mörk úr hraðaupphlaupum og Björgvin er líka byrjaður að verja.

06.17 Ísland - Pólland 1-0

Byrjunin lofar góðu. Íslenska vörnin er mjög grimm og stöðvaði pólsku sóknina í tvígang og skoraði eitt úr hraðaupphlaupi. Tvær sóknir íslenska liðsins hafa þó farið í súginn.

06.15 Ísland - Pólland 0-0

Leikurinn er hafinn og það eru Íslendingar sem byrja með boltann.

06.13 Frakkar unnu Rússa

Frakkar unnu þriggja marka sigur á Rússum í fyrsta leik fjórðungsúrslitanna og eru því komnir í undanúrslit.

Frakkar í undanúrslit

06.00 Velkomin til leiks

Vísir heilsar hér á þessum miðvikudagsmorgni en nú er stutt í að leikur Íslands og Póllands hefjist. Þetta er leikur í fjórðungsúrslitum keppninnar á Ólympíuleikunum en sigurvegari leiksins mætir sigurvegara leiks Suður-Kóreu og Spánverja.




Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 11. feb. 2012 18:15

Fram og Valur međ örugga sigra

Heil umferđ fór fram í N1-deild kvenna í dag. Toppliđin Fram og Valur unnu örugga sigra en...  

Meira
Handbolti 11. feb. 2012 17:59

Rakel Dögg samdi viđ Stjörnuna

Rakel Dögg Bragadóttir er aftur gengin til liđs viđ Stjörnuna en ţetta kom fram í tilkynni...  

Meira
Handbolti 11. feb. 2012 17:47

Fjórtán íslensk mörk dugđu ekki til

Rúnar Kárason og félagar í nýliđum Bergischer HC unnu sterkan útisigur á Hannover-Burgdorf...  

Meira
Handbolti 11. feb. 2012 13:30

Igropoulo leysir af Alexander hjá Füchse Berlin

Dagur Sigurđsson, ţjálfari Füchse Berlin, hefur fengiđ öflugan leikmann til ađ leysa Alexa...  

Meira
Handbolti 11. feb. 2012 11:30

Ísland mćtir Ţýskalandi í mars

Ţýska handknattleikssambandiđ tilkynnti í gćr ađ Ţjóđverjar munu spila ćfingalandsleik geg...  

Meira
Handbolti 10. feb. 2012 07:00

Guđmundur: Verđum áfram ljónsterkir

Ţýska úrvalsdeildin er komin aftur af stađ eftir ađ Evrópumeistaramótinu í Serbíu lauk. Gu...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 22:02

Umfjöllun og viđtöl: Haukar - FH 20-26

Toppliđ Hauka í N1-deild karla fer ekki vel af stađ eftir EM-fríiđ. Liđiđ tapađi í kvöld s...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 21:55

Umfjöllun og viđtöl: HK - Valur 28-26

Góđur seinni hálfleikur bćtti upp fyrir lélega byrjun í 28-26 sigri HK á Valsmönnum í Digr...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 21:20

Afturelding náđi stigi gegn Fram

Framarar misstigu sig í Mosfellsbćnum í kvöld er ţeir fengu ađeins eitt stig gegn nćstneđs...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 20:40

Umfjöllun og viđtöl: Grótta – Akureyri 19-28

Akureyri vann öruggan sigur á Gróttu á Seltjarnarnesinu í kvöld. Lokatölurnar urđu 19-28 o...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 19:22

Auđvelt hjá Kiel í Meistaradeildinni

Íslendingaliđiđ Kiel er komiđ međ ţriggja stiga forskot í D-riđli Meistaradeildar Evrópu e...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 17:00

Dujshebaev áfram hjá Atletico: Vonast til ađ verđa eins og Ferguson

Talant Dujshebaev, ţjálfari spćnska handboltaliđsins Atletico Madrid sem áđur hét Ciudad R...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 07:15

Bíđ ekki í vöggunni eftir snuddunni

Landsliđsmađurinn Kári Kristján Kristjánsson ćtlađi ađ vera búinn ađ ganga frá sínum framt...  

Meira
Handbolti 09. feb. 2012 06:30

Ágúst útilokar ekki ađ koma heim

„Ég er međ tilbođ frá Odense í Danmörku ađ ţjálfa kvennaliđiđ ţar og verđ ađ svara ţ...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 22:07

Umfjöllun og viđtöl: Valur – Stjarnan 35-28

Valskonur eru komnar í úrslit Eimskipsbikars kvenna í handbolta eftir öruggan sigur á Stjö...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 21:02

Eyjastúlkur á leiđ í Höllina eftir auđveldan sigur á FH

ÍBV tryggđi sér í kvöld sćti í úrslitum Eimskipsbikarkeppni kvenna er liđiđ vann afar örug...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 20:53

Hamburg lagđi Berlin | Kári skorađi sigurmark Wetzlar

Ţýskalandsmeistarar Hamburg unnu afar mikilvćgan heimasigur, 24-23, á lćrisveinum Dags Sig...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 19:48

Álaborg lagđi AG öđru sinni í vetur

Álaborg hefndi fyrir tapiđ gegn AG í úrslitum bikarkeppninnar um helgina međ ţví ađ skella...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 14:15

Guđjón Valur: Vildi alltaf spila međ Kiel

Guđjón Valur Sigurđsson segir ađ draumur hafi rćst međ ţví ađ skrifa undir tveggja ára sam...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 13:30

Hamburg - Füchse Berlin í beinni í kvöld

Ţýska úrvalsdeildin er komin aftur af stađ en í kvöld verđur viđureign Hamburg og Füchse B...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 10:48

Kiel stađfestir komu Guđjóns Vals

Guđjón Valur Sigurđsson hefur gert tveggja ára samning viđ ţýska stórliđiđ Kiel en Klaus E...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 07:00

Spennandi verkefni í Austurríki

Patrekur Jóhannesson tók í haust viđ starfi landsliđsţjálfara Austurríkis og kom liđinu yf...  

Meira
Handbolti 08. feb. 2012 06:00

Svíinn Du Rietz á leiđ til Löwen

Ţýska liđiđ Rhein Neckar-Löwen tilkynnti í gćr um enn frekari breytingar sem verđa á liđin...  

Meira
Handbolti 07. feb. 2012 17:30

Búiđ ađ fresta undanúrslitaleiknum í Eyjum

Nú síđdegis var ákveđiđ ađ fresta undanúrslitaleik ÍBV og FH í Eimskipsbikar kvenna í hand...  

Meira
Handbolti 07. feb. 2012 07:30

Arnór: Vitum ađ viđ erum bestir

Danska ofurliđiđ AG frá Kaupmannahöfn hélt sigurgöngu sinni áfram um helgina er ţađ vann d...  

Meira
Handbolti 06. feb. 2012 06:00

Ţrír bikarmeistaratitlar í röđ hjá Arnóri

AG frá Kaupmannahöfn varđ danskur bikarmeistari í gćr eftir öruggan sex marka sigur á Álab...  

Meira
Handbolti 05. feb. 2012 16:36

AG bikarmeistari annađ áriđ í röđ | 16 íslensk mörk í úrslitaleiknum

AG bikarmeistari varđ í dag danskur bikarmeistari í handbolta eftir öruggan sex marka sigu...  

Meira
Handbolti 05. feb. 2012 14:30

Vinnur AG fjórđa titilinn í röđ í danska handboltanum?

AG Kaupmannahöfn mćtir Aalborg Hĺndbold í bikarúrslitaleiknum í dag en Íslendingaliđiđ frá...  

Meira
Handbolti 05. feb. 2012 10:00

Íslenskur eftirlitsmađur á Íslendingaslag í Evrópukeppni félagsliđa

Handknattsleikssambandiđ hefur sent frá sér yfirlit yfir ţá dómara og eftirlitsmenn sem ha...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 18:25

KA/Ţór vann óvćntan sigur á HK og komst af botninum

KA/Ţór, botnliđiđ í N1-deild kvenna í handbolta, vann mjög óvćntan 23-22 sigur á HK í KA-h...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 17:12

Sunna María međ tíu mörk í sigri Gróttu

Sunna María Einarsdóttir og félagar hennar í Gróttu eru ađeins einu stigi á eftir Haukum í...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 15:07

Valskonur skoruđu 39 mörk í Eyjum

Valur vann 39-32 sigur á ÍBV í N1 deild kvenna í handbolta í dag en leikurinn fór fram í V...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 15:05

AG komiđ í úrslitaleikinn | Lenti í smá vandrćđum međ Ajax

AG Kaupmannahöfn tryggđi sér sćti í bikarúrslitaleiknum í danska handboltanum međ 29-25 si...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 12:00

Niklas Landin: AG verđur bikarmeistari

Niklas Landin, hinn frábćri markvörđur nýkrýndra Evrópumeistara Dana, verđur ekki í sviđsl...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 10:00

Er ekki búinn ađ semja

Guđjón Valur Sigurđsson segir ađ ţađ sé rangt sem kvisađist út í gćr ađ hann vćri búinn ađ...  

Meira
Handbolti 04. feb. 2012 09:30

Aron fékk slćma matareitrun

Aron Pálmarsson, leikmađur Kiel, er á ágćtum batavegi eftir ađ hafa fengiđ heiftarlega mat...  

Meira
Handbolti 03. feb. 2012 22:12

Stórsigur Fram á FH

Fram vann í kvöld yfirburđasigur á FH í N1-deild kvenna, 35-15, og styrkti ţar međ stöđu s...  

Meira
Handbolti 03. feb. 2012 16:00

Gro Hammerseng búin ađ eignast lítinn strák

Gro Hammerseng, fyrirliđi norska kvennalandsliđsins í handbolta og ein besta handboltakona...  

Meira
Handbolti 03. feb. 2012 15:30

Ţórey Rósa framlengdi viđ Team Tvis Holstebro

Landsliđskonan Ţórey Rósa Stefánsdóttir hefur framlengt samning sinn viđ danska úrvalsdeil...  

Meira
Handbolti 03. feb. 2012 12:00

Guđjón Valur búinn ađ semja viđ Kiel

Guđjón Valur Sigurđsson, landsliđsmađur í handbolta hefur skrifađ undir samning viđ ţýska ...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 22:23

Aron var mjög reiđur sínum leikmönnum

Aron Kristjánsson, ţjálfari Hauka, var allt annađ en sáttur viđ sitt liđ í kvöld og las li...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 22:21

Hlynur: Gott ađ losna viđ öskrin í Óskari

Hlynur Morthens, markvörđur Vals, sló á létta strengi eftir flottan sigur hans manna á top...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 21:51

Umfjöllun og viđtöl: FH - Afturelding 24-20

Ţađ var fín skemmtun sem bođiđ var upp á í kvöld í Kaplakrikanum. FH vann fjögurra marka s...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 21:29

Umfjöllun og viđtöl: Valur - Haukar 25-18

Valsmenn nýttu greinilega EM-fríiđ nokkuđ vel ţó svo ţjálfarinn, Óskar Bjarni Óskarsson, v...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 21:27

Umfjöllun og viđtöl : Fram - Grótta 23-21

Framarar náđu rétt svo ađ innbyrđa sigur, 23-21, gegn botnliđi Gróttu í Safamýrinni í kvöl...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 20:57

Umfjöllun og viđtöl: Akureyri - HK 25-27

HK vann ótrúlegan sigur á Akureyri í N1-deild karla í kvöld. Stađan var jöfn í lokin en ót...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 16:15

Fleiri Svíar á leiđinni til AG

Jesper "Kasi" Nielsen, eigandi danska stórliđsins AG Kaupmannahöfn er farinn ađ safna Svíu...  

Meira
Handbolti 02. feb. 2012 06:00

45 daga biđ endar í kvöld

N1 deild karla í handbolta fer aftur af stađ í kvöld eftir 45 daga hlé vegna jólafrís og E...  

Meira
Handbolti 01. feb. 2012 16:45

Ingvar og Jónas dćma aftur hjá Japan í dag

Ingvar Guđjónsson og Jónas Elíasson hafa stađiđ sig mjög vel á Asíumeistaramóti karlalands...  

Meira
Handbolti 01. feb. 2012 12:30

AGK búiđ ađ finna eftirmann Guđjóns Vals

Danska stórliđiđ AG Kaupmannahöfn hefur fundiđ eftirmann Guđjón Vals Sigurđssonar sem mun ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Handbolti / Ísland spilar um verđlaun á Ólympíuleikunum