Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu

Fréttablaðið Aðsendar greinar 26. júlí 2008 06:00
Gunnar Einarsson
Gunnar Einarsson
Gunnar Einarsson bæjarstjóri skrifar:
Nauðsynlegt er að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Það verður þó ekki gert með því að gefa öllum „frítt" í strætó. Bæta þarf rekstrarstöðu Strætó bs. og efla þjónustu fyrirtækisins til að laða að fleiri notendur. Ríki, sveitarfélög og notendur strætisvagna þurfa að leggja sitt af mörkum til að gera almenningssamgöngur að góðum valkosti á höfuðborgarsvæðinu. Með þessari grein er tilraun gerð til að fá málefnalega umræðu um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, þátttöku ríkisins og rekstur Strætó bs. almennt.




Þáttur ríkisins
Í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar segir að ráðist verði í stórátak í samgöngumálum. Aukin áhersla verði lögð á almenningssamgöngur og að ríkisstjórnin muni beita sér sérstaklega fyrir úrbótum á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Eins og staðan er nú hækka tekjur ríkisins af Strætó um leið og almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru styrktar. Tekjur ríkisins eru m.a. vegna bifreiðagjalda, virðisaukaskatts og tryggingagjalda launa og ríkið leggur ekki til almenningssamgangna nema endurgreiðslu á um 80% af olíugjaldi. Fram til þessa hefur ríkið verið áhugalaust um að taka þátt í eflingu almenningssamgangna. Viðkvæðið hefur verið að ekki sé um skylduverkefni ríkisins að ræða en reyndar eru almenningssamgöngur ekki skylduverkefni sveitarfélaganna heldur ef út í það er farið. Hinsvegar hefur ríkið áhuga á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og liður í því gæti verið, í samræmi við umhverfissjónarmið, að efla almenningssamgöngur. Í ágætri skýrslu starfshóps um eflingu almenningssamganga sveitarfélaga sem nú er til umfjöllunar í samgönguráðuneytinu er tíundað með hvaða hætti ríkið kemur að eflingu almenningssamgangna á Norðurlöndunum. Við þann yfirlestur má greina verulegan mun á afstöðu og þátttöku ríkisstjórna á Norðurlöndum til styrktar almenningssamgöngum í samanburði við Ísland. Í framangreindri skýrslu er einnig fjallað um þátttöku notenda á Norðurlöndum í rekstrarkostnaði og útboð á þjónustu, en yfirleitt er þjónustan boðin út. Á sama tíma og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru að óska eftir aukinni þátttöku ríkisins í rekstri er að sjálfsögðu hjákátlegt að samþykkja í stjórn Strætó afsal af tekjum í formi verkefnisins „frítt" í Strætó.




„Frítt“ í strætó?
Almenningssamgöngur þurfa að vera tíðar, fljótar, áreiðanlegar og þægilegar. Að mínu viti ráða þessir þættir mestu um hvort íbúar notar almenningssamgöngur, en ekki hvort þjónustan kostar t.d. 100 kr. á ferð fyrir aldurshópinn 6-18 ára líkt og núverandi gjaldskrá segir til um. Til að geta veitt góða þjónustu þurfa sveitarfélög, ríkið og notendur þjónustunnar að koma að borðinu. Á Norðurlöndum er þátttaka notandans frá 30-70% af heildarkostnaði við almenningsvagnakerfið. Sjaldgæft er að gefið sé „frítt" í strætó, hinsvegar eru afslættir til einstakra aldurshópa og vegna ferðamagns. Það vekur athygli að hlutfall farþegatekna er mjög lágt hjá Strætó bs. miðað við aðrar borgir og nágrannalöndin samanber nefnda skýrslu. Fyrir utan ávinninginn af kostnaðarþátttöku notandans til bættrar þjónustu er ávinningurinn einnig í formi virðingar fyrir þjónustunni og skýrra skilaboða til notenda um að gera kröfur um góða þjónustu. Samkvæmt úttekt sem Strætó lét gera fjölgaði farþegum úr hópi framhalds- og háskólanema um 8-12% eftir að þeir fengu „frítt" í strætó. Hvort sú aukning er eingöngu tilkomin vegna þess að „frítt" er í strætó er erfitt að meta. Aukinn rekstrarkostnaður einkabifreiða, umfjöllun og auglýsingar um ágæti notkunar strætó og fjölgun þeirra sem stunda nám á framhaldsstigi geta einnig útskýrt fjölgun farþega. Jafnframt má í þessu samhengi benda á þá „hættu" að færri nýti sér að hjóla eða ganga þegar þeir fá „frítt" í strætó. Færa má rök fyrir því að allar aðgerðir gegn einkabifreiðum auki notkun á almenningssamgöngum. Fulltrúi Garðabæjar í stjórn Strætó bs. sat hjá við afgreiðslu stjórnar á framhaldi á verkefninu „frítt" í strætó m.a. vegna þeirra raka sem koma fram hér að framan, en einnig til þess að vekja athygli á mjög erfiðri rekstrarstöðu Strætó bs. sem alls ekki má við skerðingu tekna af fargjöldum.




Rekstur Strætó bs.
Rekstur Strætó bs. er þungur. Á komandi árum má búast við að hann þyngist, m.a. vegna hærri rekstrarkostnaðar og aukinna krafna um þjónustu. Á árinu 2007 var heildarrekstrarkostnaður vegna reksturs Strætó bs. rétt rúmlega 3,0 milljarðar, en á móti koma tekjur af farmiðasölu um 670 milljónir. Framlög sveitarfélaganna með rekstrinum námu því um 2,3 milljörðum króna. Reykjavík, sem dæmi, greiddi til reksturs Strætó bs. samkvæmt þessu tæplega 1,7 milljarða króna árið 2007. Ef heldur sem horfir í rekstri Strætó bs. mun heildarrekstrarkostnaður verða um 5 milljarðar innan fárra ára og ef allir ættu að fá „frítt" þýðir það að Reykjavík þarf að borga um 3,2 milljarða árlega samkvæmt skiptareglu til reksturs Strætó bs. Kópavogur hefur tekið ákvörðun um að veita sínum íbúum öllum „frítt" í strætó frá og með hausti. Einnig hefur núverandi borgarstjóri Reykjavíkur lýst sinni framtíðarsýn í þá átt að allir Reykvíkingar fái „frítt" í strætó fyrir lok kjörtímabilsins. Þessi sveitarfélög þurfa að kaupa farmiða samkvæmt gildandi gjaldskrá Strætó bs. fyrir sína íbúa þegar að þessari framkvæmd kemur, að öllu óbreyttu.




Efling almenningssamgangna

Til að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu þarf margvíslegar aðgerðir sem ríki, sveitarfélög og notendur þurfa að koma að. Auka þarf forgang strætó í umferðinni, fjölga göngu- og hjólastígum, auðvelda tengingar milli bæjarfélaga og auka upplýsingaflæði til íbúa um leiðir og ávinning af notkun almenningssamgangna. Nauðsynlegt er að bæta rekstrarumhverfi Strætó bs. þannig að hægt verði að bjóða tíðar ferðir í þægilegum og öruggum vögnum. Þjónusta verður ekki bætt nema til komi aukinn stuðningur ríkisins, notendur greiði sanngjarnt farmiðagjald og að allur rekstur verði boðinn út.

Höfundur er bæjarstjóri Garðabæjar.





Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu