Ađ sjá um sína

Fréttablađiđ Fastir pennar 24. júní 2008 06:15
Jónína Michaelsdóttir
Jónína Michaelsdóttir
Jónína Michaelsdóttir skrifar:

Um miðja síðustu öld var vinsæl matvöruverslun á Austurgötu 25 í Hafnarfirði sem auglýsti undir slagorðinu Gunnlaugur sér um sína, og það munu ekki hafa verið orðin tóm. Á tímum skömmtunar og þrenginga lagði kaupmaðurinn, Gunnlaugur Stefánsson, metnað sinn í að útvega viðskiptavinum sínum eftirsóttar nauðsynjavörur og var úrræðagóður og laginn í þeim efnum. Þetta var á þeim árum sem hverfiskaupmaðurinn þekkti viðskiptavini sína persónulega, sem og fjölskyldur þeirra og aðstæður.

Auk verslunarreksturs rak Gunnlaugur um árabil útgerð frá Hafnarfirði og víðar, sat í stjórn KFUM í Hafnarfirði og stjórn Kaupmannafélags Hafnarfjarðar. Hann var einn af stofnendum Félags íslenskra iðnrekenda og Félags óháðra borgara í Hafnarfirði. Hann hafði því bærilegar aðstæður til að þekkja og skilja aðstæður Hafnfirðinga og og lét sig þær varða.




Guđspjall dagsins

Margt hefur breyst í viðskipta­lífinu síðan Gunnlaugur var og hét. Almenningur kaupir nú inn til heimilisins í stórmörkuðum og þar er naumt um persónuleg samskipti. Kaupmaðurinn á horninu er liðin tíð, þótt ein og ein búðargersemi leynist hér og þar. Guðspjall dagsins er að slá í gegn, helst í fjármálastofnun, fjöl­miðlun eða fyrirtækjarekstri. Gífurlegt framboð af leiðum til skilnings á leyniþráðum velgengninnar hefur skapað upplýsta og sjálfsörugga stétt sérfræðinga á þessum sviðum, en stundum finnst manni þó skorta skilning á mannlegu eðli og samhengi hlutanna hjá þeim sem ættu að vita betur.

Æ ofan í æ heyrir maður um furðulegan dómgreindarbrest af hálfu þjónustufyrirtækja þegar kemur að samskiptum við mikilvæga viðskiptavini. Þau útvega það sem um er beðið eins og um greiðvikni sé að ræða og sýna hagsmunum viðskiptavinarins og persónu hans engan áhuga. Viðskiptavinirnir eiga oftast annan kost og taka hann gjarnan. Hætta án útskýringa öllu samstarfi við fyrirtækið.

Ég sá einu sinni umfangsmikla könnun sem bankastofnun hafði látið gera meðal viðskiptavina sinna. Þeir voru beðnir um að segja frá reynslu sinni af þjónustu fyrirtækisins, hvað þeir væru ánægðir með og hvað ekki. Aftast í skýrslunni voru svör þeirra á nokkrum blaðsíðum, og þegar við fengum hana í hendur sagði einn af starfsmönnum bankans að þessi svör myndu naumast koma á óvart. Þeir sem hefðu fengið lánafyrirgreiðslu myndu vera sáttir en hinir ekki. Annað kom á daginn. Hver viðskiptavinurinn á fætur öðrum sagði frá atvikum sem að þeirra mati var sérlega góð þjónusta, og kostaði bankann ekki krónu. Þetta voru gjarnan lítil viðvik sem viðkomandi starfsmanni bar ekki skylda til að gera:

Starfsmaður sem var á leið út í mat mætti í dyrunum fullorðinni konu sem sneri sér yfirleitt til hans með sín mál. Starfsmaðurinn heilsaði konunni glaðlega, fór úr yfirhöfninni og snaraði sér inn fyrir afgreiðsluborðið og leysti úr málum hennar. Þessi kona fór út úr bankanum með þá tilfinningu að hún skipti einhverju máli hjá fyrirtækinu. Margir nefndu samsvarandi dæmi. Nánast engin fyrirhöfn og engin útlát. Aðeins persónuleg samskipti, sprottin úr áhuga á öðru fólki og aðstæðum þess.




Fólkiđ í firđinum
Hundrað ára afmæli Hafnarfjarðar er nú haldið með glæsibrag. Eitt af því sem boðið er upp á í tilefni þessara tímamóta er ljósmyndasýning Árna Gunnlaugssonar í Hafnarborg. Þetta eru hundruð ljósmynda af Hafnfirðingum teknar á árunum 1960 til 1992. Þarna er fólk sem komið er yfir miðjan aldur og hefur sett svip á umhverfi sitt með einum eða öðrum hætti. Margar myndanna eru teknar á förnum vegi, en aðrar tengjast stöðum eða áhugamálum viðkomandi. Þarna er til dæmis mynd af Guðmundi nokkrum sem vann hjá Einarsbræðrum og fór jafnan á hesti í vinnuna og mynd af sr.Garðari Þorsteinssyni á heimleið frá messu í Hafnarfjaðarkirkju eftir að hafa sett nýja presta inn í embættið sem hann hafði gegnt um árabil.

Árni hefur gefið út þrjár bækur með myndum af eldri Hafnfirðingum og greinargóðum upplýsingum um þetta fólk og er sýningin að mestu byggð á þeim myndum. Svona gerir enginn nema honum sé annt um samferðafólk sitt og bæinn sinn. Hann minnir okkur á að bærinn er ekki húsin í hrauninu, heldur fólkið sem í þeim býr. Lögfræðingurinn og lagasmiðurinn Árni Gunnlaugsson sat í bæjarstjórn í mörg ár. Hann hefur sjálfur sett svip á daglegt líf í Hafnarfirði, léttur í spori, mannblendinn og áhugasamur um málefni dagsins. Með þeirri virðingu fyrir fólkinu í bænum sem birtist í myndum hans og þeirri atorku sem að baki liggur er vel hægt að segja að Árni sjái um sína, rétt eins og Gunnlaugur faðir hans gerði.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Ţegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alţingi um stofnun háskóla ţótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitiđ kynnti í gćr mikla úttekt á verđţróun og samkeppni á dagvörumarkađi. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og ađ stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiđanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiđandinn...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Tímabćrt ađ taka sönsum

Hagfrćđistofnun Háskóla Íslands hefur skilađ skýrslu ađ beiđni ríkisstjórnarinnar ţar sem ...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Vítahringur Vestursins

Einn ráđgjafa Clintons forseta sagđist áhugalaus um ađ eyđa nćstu jarđvist sinni sem forse...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Ađ sjá um sína