Lífið

Arnaldur Indriðason vinnur að nýrri bók um Erlend og félaga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Arnaldur Indriðason tók á móti Blóðdropanum í gær. Mynd/ Viktor Arnar Ingólfsson
Arnaldur Indriðason tók á móti Blóðdropanum í gær. Mynd/ Viktor Arnar Ingólfsson

„Þessi verðlaun hafa auðvitað mikla þýðingu fyrir okkur sem erum að fást við glæpasagnagerð. Ekki síst vegna þess að þau gefa tækifæri til þess að taka þátt í keppnum um bestu glæpasögur Norðurlanda og vera þar með í hópi með kollegum okkar á Norðurlöndunum," segir Arnaldur Indriðason rithöfundur. Arnaldur hlaut í gær Blóðdropann, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir nýjustu bók sína Harðskafa.

„Þetta er gott og þarft framtak hjá Glæpafélaginu að standa að þessu svona veglega og tengja okkur þarna beint í skandinavísku glæpasagnahefðina," segir Arnaldur jafnframt. Harðskafi verður framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna, Glerlykilsins, sem Arnaldur hefur tvisvar sinnum hlotið, en hann er eini Íslendingurinn sem hefur hlotið þessi verðlaun.

„Ég held að það sé að glæðast meiri og meiri áhugi ár frá ári á þessari gerð bókmennta. Það sýnir sig bæði í aukinni útgáfu og auknum lestri, enda sýnist mér að það séu komnir fram mjög frambærilegir höfundar," segir Arnaldur þegar hann er spurður að því hvort áhuginn Íslendinga á glæpasögum sé að aukast.

Að sögn Arnaldar hefur Harðskafi hvergi komið út erlendis ennþá. „Það er verið að þýða hana og hún kemur út í Svíþjóð og Noregi snemma á næsta ári veit ég," segir Arnaldur. Bókin verður svo að sjálfsögðu einnig þýdd á ensku og þýsku.

Íslenskir aðdáendur Erlendar, Sigurðar Óla og Elínborgar geta glaðst því að Arnaldur segir að ný bók í seríunni muni koma út þann 1. nóvember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×