Ólöf Ósk: „Eins og stanslaus jarðskjálftahrina“ 20. maí 2008 16:36 Ólöf Ósk Erlendsdóttir. „
Það var ekki fyrr en mér var bent á það að ég fann að dómurinn var uppreisn æru fyrir mig", segir Ólöf Ósk Erlendsdóttir sem fyrst steig fram í kjölfar Kompásþáttarins um Byrgið og vitnaði um eigin reynslu af kynferðisbrotum Guðmundar forstöðumanns gegn sér. Þegar dómur féll í Byrgismálinu í Héraðsdómi Suðurlands fyrir rúmri viku þar sem Guðmundur var dæmdur í þriggja ára fangelsi fann Ólöf Ósk til léttis. Í viðtali við Kompás í kvöld segir hún að það hafi þó tekið tímann sinn fyrir sig að átta sig á eigin tilfinningum. „Þetta var búinnn að vera svo mikill rússíbani fyrir mig að ég hafði varla skoðun á því hvort þetta var þungur eða léttur dómur", segir hún. Ólöf er ein fjögurra kvenna sem Guðmundur er dæmdur fyrir að hafa brotið gegn. Næstu daga eftir að Byrgisþáttur Kompáss var sýndur 17. desember 2006 logaði samfélagið og bar mikið á samúð með forstöðumanninum og gagnrýni á Kompás. Það breyttis þegar Ólöf Ósk steig fram í viðtali í Íslandi í dag fjórum dögum síðar og sagði frá því hvernig Guðmundur hafði, meðal annars með vísan til guðlegrar forsjónar, tælt sig til kynlífsathafna. Nokkrum mánuðum síðar brast hún undan álagi fjölmiðlaathyglinnar og netbirtingar af kynlífsmyndbandi sem sýndi hana og forstöðumanninn. Við tók margra mánaða neysla fíkniefna og svo fór að hún var ákærð og dæmd fyrir hlutdeild í alvarlegu ofbeldisbroti. Ólöf afplánar nú þann dóm í kvennafangelsinu í Kópavogi. „Þessi tími er búin að vera eins og stanslaus jarðskjálftahrina", segir Ólöf í viðtalinu en horfir samt björtum augum til framtíðar. Kompás er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 21:50.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Sjá meira