Lífið

Miley skrifar sjálfsævisögu fyrir sextán

Fólk þroskast hratt í sviðsljósinu í Hollywood. Þetta veit Miley litla Cyrus vel. Henni finnst því fullt tilefni til að rita æviminningar sínar, og helst að klára þær áður en hún verður sextán.



Útgáfusamningurinn mun samkvæmt heimildum OK tímaritsins vera milljóna dollara virði. Reyndar mun Miley ekki munda pennan sjál, en útgefandinn, Disney Books, leitar að leigupenna til að festa herlegheitin á blað.

Í bókinni mun Miley, sem er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Hannah Montana, uppljóstra öllu því sem á daga hennar hefur drifið á stuttri en viðburðarríkri ævi. Slúðurblöðin vestanhafs spá því að bókin verði um fimm síður að lengd.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×