Bílabúskapur

Fréttablaðið Fastir pennar 07. apríl 2008 06:00
Guðmundur Andri Thorsson
Guðmundur Andri Thorsson
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:

Þess er eflaust skammt að bíða að fyrsti Íslendingurinn láti grafa sig í bílnum sínum, en eins og kunnugt er tíðkaðist það til forna að höfðingjar létu grafa sig með eftirlætis hestinum sínum. Því að bíll er ekki bara bíll - ekki bara tæki til að koma fólki milli tveggja staða. Milli manns og bíls liggja leyndir þræðir.

Bíllinn virðist til dæmis virkja umhyggjuhvöt íslenska karlmannsins meira en flest annað - meira að segja börn. Sumir tengja þessa bílaást kynhvöt og jafnvel uppbót á það sem á kann að vanta í færleik á því sviði en ég hef aldrei verið alveg viss um að sú kenning standist: ég er ekki viss um að íslenskir karlmenn séu nægilega miklar kynverur til þess...
Ég held miklu fremur að bíladellan íslenska tengist ómeðvitaðri löngun til búskapar sem grunnt er á í flestum íslenskum karlmönnum - tengist kotbóndanum sem býr í okkur flestum. Að vera með bílabúskap. Hvað býrðu nú með mikið af bílum? Njaa það er óvera, ætli það séu nema svona fimm sex...

Í þögulli návist sinni sameinar bíllinn kosti og eiginleika sauðkindarinnar og hestsins - og jafnvel hundsins. Þess vegna vilja flestir Íslendingar eiga að minnsta kosti nokkra bíla með ólíka eiginleika - eigi þeir þess ekki hreinlega kost að eiga heilt bílastóð.

Rétt eins og hesturinn er bíllinn sambland af förunaut og farkosti, vini og vinnudýri, í senn undirgefinn og öflugur, margbrotin skepna sem maðurinn lærir á smám saman með þolinmæði og ástríki. Hann getur ýmist verið gæðingur eða dráttarklár, hann hefur ýmsar ólíkar gangtegundir sem hægt er jafnvel að þróa með kunnáttusemi og svo er hægt að selja eintök með sérræktuðum eiginleikum.

Rétt eins og sauðkindin er bíllinn fagur og hægt að nostra við útlit hans; menn hafa sitt eigið bílnúmer eins og markið og bíleigendur hafa líka unun af að safnast saman og bera saman bíla sína eins og tíðkast í réttum. Og rétt eins og sauðkindin er bíllinn óseðjandi þegar kemur að eldsneyti...

Rétt eins og hundurinn þá elskar bíllinn eiganda sinn skilmálalaust, spyr ekki en fylgir honum möglunarlaust, treystir honum og hlustar á einræður hans í þögulli aðdáun. Til eru litlir púðlubílar fyrir kvenfólkið, og auglýsingar sýna gjarnan bíla sem nokkurs konar fjölskylduhund...



Milli manns bíls og flokks...

Bílabúskapurinn er þrá eftir veröld sem var, dálítið brjóstumkennanleg aðferð íslenska karlmannsins til að komast aftur heim í sveitina góðu, fylla tómið í hjarta sér þar sem bóndinn býr.
Bíll er tákn um frelsi og þess að vera sjálfs sín herra. Sjálfsmynd manna býr í bílnum.

Bíladellumennirnir eru ríkir eða blankir, litlir, stórir, ljótir og fríðir en umfram allt eru þeir einstaklingshyggjumenn. Bíllinn er sjálft erkitákn einstaklingshyggjunnar sem er sjálf hugmyndafræðileg kjölfesta Sjálfstæðismanna. Milli manns, bíls og Flokks liggja leyndir þræðir. Þetta er sjálfur kjarninn í kjósendahópnum, en hugmyndafræði þess flokks hefur ekki verið betur lýst en hjá Kötu frænku minni Thors sem sagði einu sinni við mig: Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn af því að ég trúi á orðtakið: Hver er sinnar gæfu smiður - ekki með spurningamerki.

Þegar flutningabílstjórar grípa til aðgerða sinna þá er það verulegt áhyggjuefni fyrir sjálfstæðismenn sem gætu séð fram á að missa þennan hóp frá sér, ekki síst þegar eini ráðherrann sem ómakar sig til að tala við þá er Kristján Möller hvíldartímaráðherra.



Íslenski dugnaðarforkurinn mættur

Upp á síðkastið hefur komið á daginn að stuðningur almennings við þessar aðgerðir var ekki jafn eindreginn og sjálfir bílstjórarnir telja og gremjuraddir farnar að heyrast.

Bent er á að einkennilegt sé að standa að mótmælum yfir því að þurfa að hvíla sig. Nefnt er að bensíngjaldið fer til að lagfæra þjóðvegina sem þessir trukkar hafa verið að spæna upp síðan sjóflutningar lögðust af - og hrekkur ekki til. Og rætt er um að vettlingatök lögreglu séu ólík þeim ofsóknum sem meðlimir Saving Iceland máttu sæta. Það var fólk sem krafðist þess að hætt yrði vinnu við tilteknar framkvæmdir - hér er verið að mótmæla því að þurfa að fá sér smáblund í framkvæmdunum.
Því íslenski dugnaðarforkurinn er mættur. Hann hefur verið að rótast í malarnámi og vegagerð, grafa grunna og reisa hús sem standa nú tóm um allt höfuðborgarsvæðið; allt er í uppnámi eftir allan dugnaðinn og verkefnum fækkar. Um leið hefur tilverugrundvelli sjálfs bílsins - þess sem helgast er - verið ógnað með háu bensínverði. Það var síðasta hálmstráið.
Íslenski dugnaðarforkurinn er kominn með áhuga á pólitík. Það kann að vera fyrirboði mikilla tíðinda.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Bílabúskapur