Góð verk dregin fram í dagsljósið

Fréttablaðið Fastir pennar 27. febrúar 2008 06:30
Góð verk dregin fram í dagsljósið
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í gær. Þetta er í þriðja sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin. Markmiðið með Samfélagsverðlaununum er að beina kastljósinu að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. Sömuleiðis er athyglinni beint að broti af því fjölmarga fólki sem leggur áþreifanlegan skerf af mörkum til þess að bæta samfélag okkar.

Stundum er sagt að í hraða nútímans fari eitthvað af þeim náungakærleik sem við erum flest alin upp við að sýna forgörðum. Þeim mun mikilvægara er að draga fram í dagsljósið eitthvað af öllu því góða og fallega sem fólk gerir af heilum hug alla daga, ekki síst svo það geti orðið öðrum til eftirbreytni. Margir gagnrýna fjölmiðla fyrir að fjalla miklu meira um það sem neikvætt er en það sem er uppbyggilegt og jákvætt. Það má til sanns vegar færa að yfirleitt þykir það fréttnæmara sem úrskeiðis fer en hitt sem gengur vel. Segja má að með veitingu Samfélagsverðlauna sé reynt að vega upp á móti þessu og segja einmitt frá einhverju því sem fer einstaklega vel í samfélaginu.

Einnig má líta á Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins sem samtal blaðsins við lesendur sína því hlutur þeirra í aðdraganda verðlaunaveitingarinnar er drjúgur. Að þessu sinni bárust liðlega 300 tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna frá lesendum blaðsins og skal þeim hér þakkað fyrir sitt góða framlag til þess að gera Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að veruleika. Fjölmargar þessara tilnefninga voru bæði góðar og athyglisverðar. Því var vandi dómnefndar nokkur þegar að hennar hlut kom. Þegar svo margar góðar tilnefningar berast getur vandinn að hafna verið mun stærri en vandinn að velja.

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fjórum flokkum. Fimm samtök og einstaklingar voru útnefnd af dómnefnd í hverjum þessara fjögurra flokka. Auk þess voru veitt ein heiðursverðlaun.

Það voru því verk 21 einstaklings og samtaka sem kastljósinu var beint að í tengslum við veitingu Samfélagsverðlaunanna í ár. Fimm þeirra voru verðlaunuð sérstaklega, þrír einstaklingar, ein hjón og ein félagasamtök.

Um leið og verðlaunahöfunum, Hjálpræðishernum, menntafrömuðinum Guðrúnu Halldórsdóttur, Herði Torfasyni tónlistarmanni og baráttumanni fyrir mannréttindum, Þorsteini Bjarna Einarssyni og Sigríði Steingrímsdóttur, fósturforeldrum fjölda barna, og Rögnu Marinósdóttur, sem unnið hefur ötullega að málefnum fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra, er óskað hjartanlega til hamingju, er rétt að ítreka að hver og einn hinna sextán sem tilnefndir voru til verðlaunanna, hefðu svo sannarlega verið þeirra verðugir líka.

Framlag alls þessa hóps leggur lóð sem um munar á vogarskálar betra samfélags á Íslandi og verðskuldar hlýjar þakkir okkar hinna.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Góð verk dregin fram í dagsljósið