Hafa áhyggjur af öryggi hinsegin fólks í Belgrad 27. febrúar 2008 22:12 Frá Hinsegin dögum í Reykjavík.
Full ástæða er til að hafa verulegar áhyggjur af öryggi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenderfólks sem hyggjast fara til Belgrad í Serbíu þegar Eurovision verður haldið þar í vor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gay Pride á Íslandi. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Belgrad, höfuðborg Serbíu, dagana 20.- 24. maí næstkomandi. Gay Pride segir að margir þeirra sem komi að söngvakeppninni séu samkynhneigðir. Þá sé stór hluti aðdáenda söngvakeppninnar samkynhneigðir, tvíkynhneigðir og transgenderfólk. Gera megi ráð fyrir að það hyggist fara til Belgrad til að fylgjast með keppninni. Varasamt að vera í Belgrad „ Tilraunir lesbía, homma, tvíkynhneigðra og transgenderfólks til að halda Gay Pride hátíðir í Belgrad hafa verið barðar niður af mikilli hörku af andstæðingum tilveruréttar þeirra og dæmi eru um að þessir menn hafi fylkt liði þúsundum saman til að berja á nokkrum tugum hugrakkra brautryðjenda mannréttinda í landinu. Árásir öfgahópa á hinsegin fólk í Serbíu og þá sérstaklega í Belgrad hafa ítrekað átt sér stað án teljandi afskipta lögreglu, sem jafnvel hefur haldið sig fjarri slíkum árásum með skipulögðum hætti. Eftir liggur fjöldi af stórslösuðu fólki sem jafnvel hefur sumt verið handtekið fyrir að reyna að vekja athygli á málstað sínum. Hinsegin dagar vara hinsegin fólk við því að fara til Belgrad. Það er aftur á móti fullkomlega eðlilegt að margir kjósi að gera það engu að síður. Hinsegin dagar skora á lesbíur, homma, tvíkynhneigða og transgenderfólk sem fer til Belgrad í tengslum við Eurovision að gæta þess að vera ekki eitt á ferli í borginni og reyna að forðast eins og hægt er að vekja athygli á kynhneigð sinni, nema öryggisgæsla sé fullnægjandi," segir í tilkynningunni. Hið opinbera láti málið til sín taka Einnig skora Hinsegin dagar á Ríkisútvarpið að huga að öryggi íslenskra þátttakenda og taka þessa ógn alvarlega. „Þá skora Hinsegin dagar á íslensk stjórnvöld að vekja athygli serbneskra stjórnvalda á þessum áhyggjum og þrýsta á Serba um að standa við evrópska og alþjóðlega mannréttindasáttmála og samninga, sem tryggja eiga lesbíum, hommum, tvíkynhneigðum og transgenderfólki sömu mannréttindi og aðrir íbúar Evrópu njóta," segir í tilkynningunni frá Gay Pride.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Sjá meira