Ástþór neitar að staðfesta framboð 5. janúar 2008 12:02
Ástþór Magnússon vill ekki staðfesta fréttir um að hann hyggist bjóða sig aftur fram til forseta. Hann ætlar sér að ræða við fréttamenn um málið um miðjan mánuðinn. Fyrrum kosningastjóri Ástþórs sagði í samtali við Vísi í fyrradag að Ástþór hyggist bjóða sig fram til forseta Íslands í sumar. Í samtali við fréttstofu Stöðvar 2 í morgun vildi Ástþór ekki staðfesta að hann ætlaði að bjóða sig aftur fram til forseta en neitaði því ekki heldur. Ástþór er staddur erlendis og sagðist hann ekki hafa tíma til að ræða málið á þessari stundu við fréttamenn en það myndi hann hins vegar gera þegar hann kæmi til Íslands um miðjan mánuðinn. Eftir að hafa tjáð fréttamanni það slitnaði símtalið og ekki reyndist unnt að ná sambandi við hann aftur. Ástþór hefur tvisvar boðið sig fram til forseta, árið 1996, þegar Ólafur Ragnar Grímsson náði kjöri, og svo aftur árið 2004. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði Þórunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Ástþór Magnússon misnota lýðræði með því að bjóða sig ítrekað fram til forseta og vill hún að reglur verði settar til að koma í veg fyrir slíkt. Svo sem með því að breyta ákvæði stjórnarskrárinnar um fjölda meðmælenda forsetaframbjóðenda. Þórunn vill einnig að sérstök eyðublöð verði útbúin fyrir meðmælendalista frambjóðenda svo ekki fari á milli mála þegar fólk skrifar undir slíka lista hvað það er að skrifa undir. Þórunn sagði meðmælendalista Ástþórs í síðustu kosningum hafa verið óskýra og kjósendur jafnvel talið sig vera að skrifa undir friðarboðskap en ekki undir stuðningsyfirlýsingu við Ástþór. Hjá Dómsmálaráðuneytinu fengu þær upplýsingar að þar séu menn að velta fyrir sér að búa til fyrirmynd af meðmælendalistum en frambjóðendur ráði sjálfir hvort þeir noti þá fyrirmynd. Í fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir rúmlega hundrað og sjötíu milljón króna útgjöldum vegna forsetakosninganna næsta sumar.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Innlent Reykur sást á flugvallarsvæðinu Innlent Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent Fleiri fréttir Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Sjá meira