Innlent

Misnotaði dóttur besta vinar síns

Hæstiréttur staðfesti í dag átján mánaða dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn 10 ára barni. Barnið var dóttir besta vinar mannsins.

Brotin áttu sér stað á síðasta ári. Í eitt skiptið káfaði maðurinn á stúlkunni utanklæða en í hitt skiptið sleikti hann kynfæri hennar og lét getnaðarlim sinn í munn hennar.

Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni eina milljón króna í miskabætur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×