Greint var frá þvíí í kvöld hvaða fimm skáldverk og fimm fræðirit eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Í flokki skáldverka eru eftirtaldar bækur tilnefndar:
Höggstaður eftir Gerði Kristnýju
Kalt er annars blóð eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur
Minnisbók eftir Sigurð Pálsson
Rimlar hugans eftir Einar Már Guðmundsson
Söngur steinasafnarans eftir Sjón
Í flokki fræðirit og bóka almenns efnis eru þessar tilnefndar:
Erró í tímaröð eftir Daníel Kvaran
Ljóðhús eftir Þorstein Þorsteinsson
Sagan um Bíbí eftir Vigdísi Grímsdóttur
Undrabörn eftir Mary Ellen Mark
ÞÞ í fátæktarlandinu: Þroskasaga Þórbergs Þórðarsonar eftir Pétur Gunnarsson
Verðlaunin verða afhent í lok janúar.
Þá var jafnframt greint frá því að kápan á bókinni um Bíbí eftir Vigdísi Grímsdóttur hefði verið valin bókakápa ársins.