Innlent

Stefna að því að koma á fót alhliða brjóstameinastöð

Björn Gíslason skrifar
Verkefni þeirra Herdísar og Jóhönnu hefur fengið nafnið Lífstré.
Verkefni þeirra Herdísar og Jóhönnu hefur fengið nafnið Lífstré.
Tveir hjúkrunarfræðingar vinna að því að koma á fót brjóstameinamiðstöð hér á landi þar sem konum sem greinast með brjóstakrabbamein og aðra sjúkdóma í brjóstum og aðstandendum þeirra verður boðið upp á alla þjónustu, allt frá greiningu til loka meðferðar.

Það eru hjúkrunarfræðingarnir Herdís Jónasdóttir og Ingibjörg Hreiðarsdóttir sem eiga hugmyndina að miðstöðinni en þær auglýsa í Morgunblaðinu í dag eftir þátttakendum í rannsókn þar sem kanna áhuga kvenna og aðstandenda þeirra á slíkri þjónustu.

Að sögn Herdísar kviknaði hugmyndin að brjóstameinastöð hjá þeim Ingibjörgu fyrir fjórum árum en slíkar stöðvar eru vel þekktar erlendis. Þær hafa unnið þróunarvinnu frá þeim tíma og fyrir um ári stofnuðu þær félagið Lífstré utan um verkefnið. „Þetta verður stöð sem mun bjóða upp á allt, allt frá greiningu á sjúkdómum til loka meðferðar. Þar á meðal verður heimaþjónusta og endurhæfing á líkama og sál," segir Herdís.

Ekki gagnrýni á núverandi þjónustu

Herdís tekur skýrt fram að í hugmyndinni felist ekki gagnrýni á núverandi þjónustu. Vel sé staðið að þessum málum hér á landi en alltaf megi gera betur, til að mynda í þjónustu við aðstandendur. „Við viljum að allir sem sjúkdómurinn snertir fái góða þjónustu," segir Herdís. Aðspurð segir Herdís að hugmyndin hafi verið kynnt fyrir tveimur síðustu heilbrigðisráðherrum, Siv Friðleifsdóttur og Jóni Kristjánssyni, en þær eigi enn eftir að ræða við Guðlaug Þór Þórðarson, nýjan heilbrigðisráðherra.

Rannsóknin sem kynnt er í auglýsingu í Morgunblaðinu í dag snýst um það hvort hugmynd þeirra Herdísar og Ingibjargar samræmist hugmyndum þeirra kvenna, sem greinst hafa með krabbamein, og aðstandenda þeirra um þjónustu vegna sjúkdómsins. Óskað er eftir þátttakendum sem greinst hafa með brjóstakrabbamein fyrir að minnsta kosti hálfu ári eða aðstandendum þeirra. Óskað er eftir 210 þátttakendum. Herdís segir að þverfaglegt teymi taki viðtölin vegna rannsóknarinnar, bæði konur sem greinst hafi með krabbamein, aðstandendur þeirra og heilbrigðisstarfsfólk sem unnið hafi í málaflokknum.

Hugmyndin að gera þjónustusamning við ríkið

Herdís á von á niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir í febrúar eða mars og þá verði haldið áfram með að þróa hugmyndina. Þær Ingibjörg hafi ákveðnar hugmyndir um það hvar reisa megi miðstöðina. Stöðin verður einkahlutafélag en Herdís segir hugmyndina þá að gera þjónustusamning við ríkið þannig að einstaklingar sem þjónsutunnar njóta greiði ekki meira en þeir gera í dag fyrir sambærilega þjónustu.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eru beðnir um að hafa samband við Herdísi í síma 694-3250 eða Ingibjörgu í síma 694-6939.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×