Led Zeppelin íhugar endurkomu

Fréttablađiđ Tónlist 27. júní 2007 06:45
Rokkararnir útiloka ekki tónleikaferđalag.
Rokkararnir útiloka ekki tónleikaferđalag.

Þrír eftirlifandi meðlimir hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Led Zeppelin eru sagðir íhuga að koma saman á ný. Hugmyndin er að koma fram saman á einum tónleikum síðar í sumar. Tónleikarnir verða haldnir til heiðurs Ahmet Ertgun, stofnanda Atlantic Records, en hann lést á síðasta ári. Ertgun þessi vann mikið með Zeppelin á sínum tíma og vilja hljómsveitarmeðlimirnir votta honum virðingu sína með því að stíga aftur á svið í þetta eina skipti.


Söngvarinn Robert Plant, gítarleikarinn Jimmy Page og bassaleikarinn John Paul Jones hafa allir tekið vel í hugmyndina, að sögn heimildarmanna breskra fjölmiðla, en með þeim í sveitinni yrði trommuleikarinn Jason Bonham, sonur upprunalegs trommuleikara Zeppelin, Johns Bonham.


Ef af endurkomunni verður mun þetta verða í fyrsta sinn í meira en tuttugu ár sem allir eftir­lifandi meðlimir sveitarinnar spila saman undir nafni Led Zeppelin, en síðustu opinberu tónleikar sveitarinnar voru á Live Aid-tónleikunum árið 1985. Síðan þá hafa Page og Plant unnið að ýmsum verkefnum saman, auk þess sem sá síðarnefndi hefur komið fram undir eigin nafni og spilað lög Led Zeppelin.


Ef minningartónleikar Ertgun ganga vel er ekki útilokað að hljómsveitin fari í tónleikaferðalag um heiminn. „Ef þeim verður vel tekið er nánast öruggt að farið verður í tónleikaferðalag," sagði einn heimildarmanna.


Fleiri fréttir - Tónlist

Tónlist 09. feb. 2012 20:00

Heiđra Gunna Ţórđar

Hljómsveitin Bítladrengirnir blíđu sem spilar Bítlalögin á barnum Obla-di-obla-da ćtlar ađ...  

Meira
Tónlist 09. feb. 2012 07:30

Ekki bara snjall lagasmiđur

Fyrsta plata skosku söngkonunnar Emeli Sandé kemur út í nćstu viku. Áhrifavaldar hennar er...  

Meira
Tónlist 09. feb. 2012 03:13

Áhrifavaldurinn Nina Simone

Hin bandaríska Nina Simone er einn helsti áhrifavaldur Emeli Sandé. Simone var söngkona, p...  

Meira
Tónlist 08. feb. 2012 21:00

Guđmundur Péturs á Faktorý

Guđmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika á Faktorý á morgun, fimmtudag. Međ honum ...  

Meira
Tónlist 07. feb. 2012 08:30

Ný plata Sigur Rósar kemur út í vor

Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokiđ upptökum á sinni sjöttu hljóđversplötu. Ţetta stađfesti...  

Meira
Tónlist 05. feb. 2012 11:00

Nota borvél á nýrri plötu

Platan Slaves međ harđkjarnasveitinni Muck kemur út á ţriđjudag. Hún hefur veriđ fáanleg í...  

Meira
Tónlist 05. feb. 2012 13:00

Starfar međ Aliciu Keys

Tónlistarmađurinn Justin Vernon, forsprakki Bon Iver, tók nýveriđ upp nokkur lög međ Alici...  

Meira
Tónlist 04. feb. 2012 15:00

Hlustuđu á Dylan á kvöldin

Hljómsveitin Blágresi hefur gefiđ út sína fyrstu plötu. Rithöfundurinn Einar Már Guđmundss...  

Meira
Tarot
Hugsađu ţér, eđa skrifađu spurningu og dragđu ţér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Lífiđ - Yfir / Tónlist / Led Zeppelin íhugar endurkomu