Innlent

Flestir tilgreina persónulegar ástæður þegar sótt er um ríkisborgararétt

Þeir sem fengið hafa ríkisborgararétt hér á landi að undangenginni afgreiðslu allsherjarnefndar Alþingis hafa flestir búið hér á landi í tvö ár eða lengur, eru eldri en 18 ára og uppfylla ekki búsetuskilyrði. Í langflestum tilvikum tilgreina þeir persónulegar ástæður eða ástæður fjölskyldulegs eðlis fyrir því að sótt er um undanþágu. Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, sendi nú síðdegis frá sér samantekt á þeim umsóknum sem allsherjarnefnd hefur afgreitt á yfirstandandi kjörtímabili.

Í tilkynningu sem fylgir samantektinni er vakin athygli á því að saman sýnir ekki ástæður þess að fallist er á beiðnina, aðeins séu tilgreind helstu rök sem teflt er fram af hálfu umsækjenda. „Afgreiðsla mála byggir síðan á heildarmati á hverri og einni umsókn," segir í tilkynningunni.

Ennfremur er bent á að í lögum um ríkisborgararétt segi að áður en umsókn um ríkisborgararétt er lögð fyrir Alþingi skuli dómsmálaráðuneyti fá um hana umsögn lögreglustjóra og Útlendingastofnunar. Uppfylli umsækjandi ekki skilyrði laga til þess að fá íslenskt ríkisfang geti hann óskað þess að málið verði sent Alþingi til frekari skoðunar. Einnig segir að umsóknir um ríkisfang fara til allsherjarnefndar til úrvinnslu.

„Löng hefð er fyrir því að nefndin feli þremur nefndarmönnum að fara yfir hverja og eina umsókn og fylgiskjöl," segir í tilkynningunni. „Er það gert á fundi sem boðaður er með fulltrúa dómsmálaráðuneytis og Útlendingastofnunar. Þessir aðilar hafa áður farið yfir gögn málsins og veita nefndarmönnum frekari upplýsingar og skýringar eftir því sem þörf krefur. Að lokinni yfirferð umsókna leggja fulltrúar nefndarinnar tillögur sínar fyrir allsherjarnefnd. Við afgreiðslu málsins geta nefndarmenn fengið skýringar, aðgang að gögnum eða upplýsingar um eðli og ástæður. Engin dæmi eru um að mál hafi verið afgreidd í ágreiningi úr undirnefnd eða frá allsherjarnefnd á þessu kjörtímabili," segir einnig.

 

144 einstaklingar hafa fengið ríkisborgararétt eftir afgreiðslu allsherjarnefndar á yfirstandandi kjörtímabili.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×