Dularfullar skepnur 19. apríl 2007 11:00 Skrímsl og skrípildi Elfar Logi Hannesson í hlutverki skrímslafræðingsins knáa. mynd/kómedíuleikhúsið
Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal í dag. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg. Viðeigandi er að verk þetta sé frumsýnt á Bíldudal því Arnarfjörðurinn er sagður eitt mesta skrímslasvæði landsins en skrípildi hafa frá örófi alda sést reglulega í sjó og vötnum á Íslandi. Þetta eru dularfullar skepnur af ýmsum toga, mishættulegar víst en í leikritinu leitast skrímslafræðingurinn Jónatan Þorvaldsson, sem leikinn er af Elfari Loga Hannessyni, við að setja fram óvefengjanlegar sannanir fyrir tilvist þeirra hér á Íslandi. Bílddælingar vinna nú að opnun sérstaks skrímslaseturs sem verður opnað á Bíldudal sumarið 2008. Það má því segja að frumsýningin sé eins konar upphitun fyrir opnun skrímslasetursins enda er stefnt að því að leikurinn verði sýndur þar í framtíðinni. Höfundur og leikstjóri er Pétur Eggerz, tónlist er eftir Guðna Franzson og Marsibil G. Kristjánsdóttir gerir skrímslamyndir. Leikritið verður síðan sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm næstkomandi laugardag en verkið verður síðar sýnt í skólum og víðar um land.
Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Fleiri fréttir Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira