Klámstarfsfólk á Gullfoss og Geysi 17. febrúar 2007 11:54
Borgarstjórinn í Reykjavík telur að fyrirhuguð ráðstefna klámframleiðenda til borgarinnar, geti grafið undan öflugu markaðsstarfi undanfarinna ára, og ímynd landsins sem miðstöðvar heilbrigðs lífernis, lýðræðis og jafnréttis. Meðal þess sem hópur hyggst gera hér á landi er að fara á skíði og skoða Gullfoss og Geysi. Óhætt er að segja að boðuð koma um 150 manns sem tengjast sölu og dreifingu á klámi á veraldarvefnum hingað til lands í byrjun næsta mánaðar hafi valdið titringi. Þannig er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka hópinn eftir hvatningu frá borgarstjóranum í Reykjavík og áskorun frá Stígamótum. Ríkisstjórnin fjallaði um málið á fundi sínum í gær og ungliðahreyfing Vinstri grænna hefur mótmælt komu þessa fólks til landsins. Í yfirlýsingu frá Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni borgarstjóra segir að honum þyki afar miður ef Reykjavíkurborg verði vettvangur slíkrar ráðstefnu og hugsanlega jafnframt vettvangur athæfis sem bannað sé með íslenskum lögum. Það sé yfirlýst stefna borgarinnar að vinna gegn klámvæðingu og vændi. Ráðstefna sem þessi sé því í óþökk borgaryfirvalda. En ef heimasíða þessa uppátækis er skoðuð, kemur ekkert fram um að til standi að framleiða hér klámefni eða dreifa því. Samkvæmt dagskrá hefur þessi heimsókn yfir sér meira yfirbragð hvataferða, sem mjög mikil áhersla er lögð á í ferðamannaiðnaðinum að fá hingað til lands. Á þeim fimm dögum sem hópurinn ætlar að dvelja hér, fer hann á skíði og snjóbretti og borðar á veitingastaðnum Broadway. Þá verður farið á Gullfoss, Geysi og Þingvöll og snætt á Geysi. Um kvöldið þann dag ætlar hópurinn svo að heimsækja nektardansstað á höfuðborgarsvæðinu. Daginn eftir ætlar hópurinn í Blá lónið og snæða þar kvöldverð áður en farið verður á næturlífið í Reykjavík. Um hádegi á síðasta degi flýgur hópurinn svo heim á leið. Á heimasíðu heimsóknarinnar er að finna myndir sem teknar voru í sams konar ferð á síðasta ári. Flestar myndirnar eru dæmigerðar ferðamannamyndir, en nokkrar þeirra verða þó að teljast all djarfar, þar sem konur sjást naktar gæla við hvor aðra, með svipuðum hætti og sjá má í tímaritum sem seld eru á blaðsölustöðum á Íslandi. Gestirnir koma hins vegar allir nálægt framleiðslu og dreifingu á klámi á netinu.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Sjá meira