Erlent

SÞ: Yfir 34 þúsund féllu í ofbeldisverkum í Írak í fyrra

Frá vettvangi sprengjutilræðis í miðborg Bagdad í dag þar sem að minnsta kosti 15 létust og yfir 70 særðust.
Frá vettvangi sprengjutilræðis í miðborg Bagdad í dag þar sem að minnsta kosti 15 létust og yfir 70 særðust. MYND/AP

Sameinuðu þjóðirnar segja að yfir 34 þúsund manns hafi fallið í ofbeldisverkum í Írak á síðasta ári og yfir 36 þúsund hafi særst. Þetta eru þrisvar sinnum hærri tölur en innanríkisráðuneyti Íraks hafa áætlað.

Haft er eftir sendifulltrúa á vegum Sameinuðu þjóðanna í Írak á fréttavef BBC að tölurnar séu unnar upp úr upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Íraks, sjúkrahúsum, líkhúsum og ýmsum öðrum stofnunum í landinu. Yfirvöld í Írak hafa ekki brugðist við þessum útreikningum Sameinuðu þjóðanna en þau hafa áður dregið tölur frá samtökunum yfir fjölda fallinna í landinu í efa.

Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna sagði þegar greint var frá tölunum að íröksk stjórnvöld yrðu að tryggja betur öryggi borgaranna og að koma yrði í veg fyrir að uppreisnarmenn næðu að lauma sér inni í öryggissveitir landsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×