Innlent

Háskólinn án netsambands

Háskóli Íslands verður hugsanlega án nettengingar við útlönd í tíu daga á meðan viðgerðir á sæstreng standa yfir.
Háskóli Íslands verður hugsanlega án nettengingar við útlönd í tíu daga á meðan viðgerðir á sæstreng standa yfir.

Allt netsamband Háskóla Íslands við útlönd fellur niður þegar viðgerð á CANTAT-3 sæstrengnum hefst. Áætlað er að viðgerðin hefjist á föstudag og standi yfir í tíu daga.

Gera má ráð fyrir að þetta muni hafa í för með sér röskun á störfum starfsmanna og nemenda við Háskóla Íslands sem og annarra mennta- og rannsóknarstofnana sem tengjast RHneti, sem annast netsamband háskólans.

Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir þetta afar bagalegt fyrir háskólanema sem og þau þekkingarfyrirtæki sem starfa innan skólans. Samkvæmt fjarskiptaáætlun samgönguráðuneytisins fyrir 2005-2010 stóð til að árið 2006 skyldu allar menntastofnanir landsins hafa sameiginlega 2,5Gbit tengingu við útlönd. Núverandi tenging RHnets er aðeins 310Mbit og háð því að einn strengur sé í lagi.

„Mér skilst að tenging Íslands við útlönd sé hægari en tenging Svalbarða við umheiminn," segir Sigurður.

„Yfirvöld hafa ekki náð að finna farveg til að koma þessu í kring. Við höfum rætt um þetta mál í nokkur ár en pólitískur vilji til úrbóta er greinilega ekki meiri en þetta," segir Jón Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri RHnets. Þau svör fengust hjá samgönguráðuneytinu að ekki væri hægt að svara fyrir þetta mál að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×