Þetta verkfall er slys

Fastir pennar 20. september 2004 03:13
Þetta verkfall er slys
Niðurstöður úr könnun OECD á kennsluháttum víða um lönd sem sagt var frá í útvarpsfréttum í fyrrakvöld voru ekki til þess fallnar að auka manni samúð með kjarabaráttu kennara. Í sem skemmstu máli leiddi þessi könnun í ljós að Ísland er í þriðja sæti á heimsvísu þegar um er að ræða framlög til kennslumála en þegar kemur að fjölda kennslustunda bregður svo við að Ísland hrapar niður úr öllu valdi. Með öðrum orðum: framlög úr almannasjóðum til menntamála skila sér ekki til barnanna. Þau fara sennilega í byggingar að klassískum íslenskum hætti – og til undirbúnings kennslu.

Og nú eru kennarar enn á ný að krefjast kjarabóta. Það er að heyra að þeir fái ekki nægan tíma til undirbúnings kennslu. Ég heyrði talsmann þeirra í útvarpinu um daginn tala um að þeir hefðu ekki nokkurn tíma til að undirbúa kennsluna – þetta væri allt orðið svo flókið. Á honum var að skilja að það væri svo erfitt að setja sig inn í öll þessi tölvumál, læra að senda tölvupóst og þar fram eftir götunum, og til þess hrykkju engan veginn þær níu stundir á viku sem ætlaðar væru til slíkra hluta.

Enginn efast um mikilvægi kennarastarfsins. Kennarastarfið er mikilvægara en öll forstjórastörfin, öll sviðsstjórastörfin, öll fulltrúastörfin, öll forstöðumannastörfin, já öll silkihúfustörfin samanlögð sem samt eru svo miklu betur borguð en kennarastarfið vegna þess að verðmætamat samfélagsins er svo brogað. Við ætlum kennurum ekki einungis að mennta börnin okkar í náttúrufræði, landafræði, stærðfræði og dönsku, heldur væntum við þess að þeir geti greitt úr öllum ágreiningi sem upp kemur, róað, sefað og huggað og innrætt þeim í leiðinni siðlega og rétta breytni: kennarar eru hitt stóra aflið í lífi barnanna okkar og því verður ekki með orðum lýst hversu mikilvægt fólk þeir eru.

Og hvernig eigum við að fara að því að meta starf þeirra? Ættu þeir að hafa fimm hundruð þúsund krónur á mánuði? Ættu þeir að hafa þrettánhundruð þúsund krónur á mánuði? Kannski átján milljónir á mánuði? Hvenær fá þeir nógsamlega borgað fyrir það sem þeim er trúað fyrir? Það verður aldrei mælt í peningum. Kennarar munu alltaf geta bent á einhverja hégómastétt og sagt: af hverju fáum við ekki jafn mikið og þetta þýðingarlausa fólk? Og það er vegna þess að verðmætamatið í samfélaginu er skakkt. En á það að bitna á börnunum? Eru kjör kennara virkilega svo slæm að hafa beri af börnum lögboðinn rétt þeirra til menntunar? Gengur þetta fólk um og sveltur?

Það er einmitt út af mikilvægi starfsins sem kennarar eru meðal þeirra stétta sem eiga að fara sparlegast með verkfallsrétt sinn. Þegar kennarar fara í verkfall er lífi barna raskað og af þeim eru hafðar kennslustundir sem þau munu aldrei endurheimta. Til þess þurfa að vera ærnar ástæður. Verkfallsréttur er neyðarréttur – og það gildir alveg sérstaklega um fólk sem hefur þann trúnaðarstarfa með höndum að annast menntun barna. Í nútímasamfélagi er verkfall algjört neyðarúrræði þegar allt annað þrýtur. Fólk fer í verkfall þegar það er beitt einhverjum stórkostlegum órétti, þegar það lepur dauðann úr skel, þegar það er niðurlægt daglega, fyrirlitið, hrakið og svívirt. Verkfall er nefnilega mjög róttæk aðgerð og verkfallsvopnið ber að umgangast með varúð og virðingu en ekki léttúð. Forystumenn launþegasamtaka sem eru starfi sínu vaxnir eiga að geta hagað réttindamálum umbjóðenda sinna með þeim hætti að ekki þurfi að koma til verkfalls.

Þetta verkfall beinist gegn börnum. Það hefur af þeim mannréttindi og lögboðinn rétt þeirra til að læra. Hafa kennarar ærna ástæðu til þess að grípa til slíkra örþrifaráða? Því getur náttúrlega enginn svarað nema þeir sjálfir. Og þeir þurfa sjálfir að svara því – strax – sjálfir en ekki þeir atvinnumenn í kjaradeilum sem fyrir þeim fara og hafa kallað þessi vandræði yfir stéttina

Þessir atvinnumenn hafa með öðrum orðum misreiknað sig. Þeir lögðu of mikið undir, þeir hafa hagað sér eins og fjárhættuspilari sem ofmetur eigin klókindi og fyrir vikið virðast viðræðurnar komnar í óleysanlegan hnút. Hvernig má líka annað vera? Það er ekki einu sinni ljóst gegn hverjum kröfurnar beinast. Sjálfar aðgerðirnar beinast gegn börnum landsins – það liggur ljóst fyrir – en þegar kemur að kröfunum verður allt þokukenndara. Samningamenn kennara krefjast þess af sveitarfélögunum að ríkið auki framlög sín til menntamála. Hafa þeir rökstuddan grun um að þessi kröfugerð muni skila árangri? Ef ekki: hvers vegna eru þeir þá að leggja út í þessa óvissuferð? Hvernig sem á það er litið virðist þetta verkfall vera óígrundað slys.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Þetta verkfall er slys