Enski boltinn

Arsenal með lokaboð í Lacazette

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lacazette fagnar með Lyon.
Lacazette fagnar með Lyon. vísir/getty
Arsenal mun koma með eitt lokatilboð í framherjann Alexandre Lacazette frá Lyon áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 31. ágúst.

Verðmiðinn er 60 milljónir punda en félagið hefur reynt að klófesta þennan 25 ára leikmann í allt sumar. Arsenal hefur nú þegar boðið 30 milljónir punda í framherjann og mun klúbburinn koma með enn hærra tilboð á næstu dögum.

Arsenal byrjaði ekki vel í ensku deildinni en félagið tapaði fyrir Liverpool á heimavelli í fyrstu umferð og gerði síðan markalaust jafntefli við Leicester þar á eftir. Liðið vann þægilegan sigur á Watford í deildinni í gær. Lacazette á að styrkja framlínu liðsins í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×