Handbolti

Aron Rafn skoraði meira en Ólafur Bjarki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Rafn varði níu skot og skoraði eitt mark.
Aron Rafn varði níu skot og skoraði eitt mark. vísir/vilhelm
Eisenach varð í kvöld fyrsta liðið til að taka stig af Bietigheim-Metterzimmern á heimavelli í þýsku B-deildinni í handbolta.

Leik liðanna í kvöld lyktaði með jafntefli, 33-33, en Eisenach jafnaði metin með flautumarki.

Aron Rafn Eðvarðsson og félagar í Bietigheim eru á toppi B-deildarinnar með 26 stig, þremur stigum á undan N-Lübbecke.

Aron Rafn varði níu skot í marki Bietigheim, eða 33,3% þeirra skota sem hann fékk á sig í leiknum.

Aron Rafn skoraði að auki eitt mark í leiknum.

Ólafur Bjarki Ragnarsson komst ekki á blað í liði Eisenach og klikkaði á eina skotinu sem hann tók í leiknum. Eisenach er í 6. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×