Handbolti

Aron kvaddi Kolding með meistaratitli

Aron Kristjánsson stýrði Kolding til sigurs í dönsku deildinni.
Aron Kristjánsson stýrði Kolding til sigurs í dönsku deildinni. vísir/daníel
Aron Kristjánsson landaði í danska meistaratitlinum í dag með liði sínu KIF Kolding Köbenhavn þrátt fyrir 20-21 tap gegn Skjern Håndbold í síðari leik liðanna í úrslitarimmunni.

Fyrri leikur liðanna endaði með 30-24 sigri Kolding og liðið vann því samanlagt 50-45.

Aron þjálfaði lið Skjern fyrir nokkrum árum síðan en þetta var síðasti leikur hans sem þjálfari Kolding, félagsins sem myndað var eftir að AG Köbenhavn fór á hausinn.

Aron stýrði Kolding einnig til sigurs í deildinni á síðustu leiktíð en hann tók við liðinu um mitt síðasta tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×