Fótbolti

Aron Einar: Kári vann einvígið heiðarlega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fyrirliðinn var sáttur með sína menn.
Fyrirliðinn var sáttur með sína menn. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, var sáttur með spilamennsku íslenska liðsins í Konya í kvöld þrátt fyrir 1-0 tap gegn Tyrklandi. Hann var þó eðlilega ósáttur með að tapa.

„Við viljum alla leiki og mér fannst við vera með tökin á þessu allan leikinn. Tyrkir byrjuðu vel en svo náðum við að spila og þeir fóru aftar og aftar,“ sagði Aron við Vísi eftir leik.

„Við getum verið stoltir af þessari frammistöðu. Þó við töpuðum þessum leik getum við byggt á þessari frammistöðu. Það var bara gífurlega svekkjandi að fá á sig þetta mark.“

Aroni, eins og fleirum í liðinu, fannst Tyrkirnir ekki eiga að fá aukaspyrnuna sem skilaði sigurmarkinu.

„Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna þarna undir lokin. Mér fannst Kári vinna einvígið heiðarlega, en einhvernveginn dæmir dómarinn aukaspyrnu. Þeir eru með frábæra spyrnumenn sem geta gert svona hluti,“ sagði Aron.

„Það er ekkert sem við getum gert í þessu núna. Við þurfum bara að halda áfram að bæta okkur. Mér finnst við getað gengið stoltir frá þessum leik. Mér leið allavega vel á vellinum.“

Klárum þá á EM

Íslenska liðið spilaði sterkan varnarleik eins og áður í undankeppninni en fram á við var ekki mikið að gerast.

„Við höfum spilað svona alla keppnina. Þetta var öðruvísi gegn Lettlandi þar sem við spiluðum mikinn bolta og menn voru út og suður. Það kom svo í bakið á okkur þar,“ sagði fyrirliðinn.

„Við þurftum að fara aftur í grundvallaratriðin eins og við höfum gert alla keppnina. Tyrkirnir eru góðir í fótbolta og því þurftum við að verjast vel og mikið á köflum. Þessi grundvallaratriði verða að vera á hreinu í Frakklandi ef við ætlum að ná úrslitum þar.“

„Tyrkir byrjuðu vel en duttu svo til baka. Þegar þeir heyrðu af úrslitunum í Hollandi bökkuðu þeir en svo þegar þeir heyrðu að Kasakar skoruðu sóttu þeir á okkur enda þurftu þeir þá bara eitt mark. Þeir voru bara heppnir að fá þessa aukaspyrnu. Ef við mætum þeim aftur á lokamótinu þá lokum við þeim,“ sagði Aron Einar Gunnarsson.


Tengdar fréttir

Ragnar: Algjört kjaftæði

Miðvörður Íslands var ekki ánægður með dóminn sem leiddi að sigurmarki Tyrklands í Konya í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×