Handbolti

Árni Steinn á leið til SönderjyskE

Anton Ingi Leifsson skrifar
Árni Steinn í leik með Haukum.
Árni Steinn í leik með Haukum. vísir/ernir
Árni Steinn Steinþórsson er á leið til SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, en þetta staðfesti Árni Steinn í samtali við vefsíðuna Sport.is í gærkvöldi.

Árni Steinn hefur undanfarin ár leikið með Haukum við góðan orðstír og varð hann Íslandsmeistari með liðinu í haust. Þá unnu Haukar Aftureldingu í úrslitarimmu Olís-deildar karla.

Í samtali við Sport.is segir Árni að hann vonist til að málin klárist eftir helgi, en samningaviðræður séu komnar ansi langt.

Hann verður ekki eini Íslendingurinn hjá SönderjyskE, en með liðinu leikur FH-ingurinn Daníel Freyr Andrésson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×