Árni Páll segir að Samfylkingin muni ekki tilnefna sendiherra Kjartan Atli Kjartansson skrifar 1. ágúst 2014 09:39 Árni Páll segir að Samfylkingin muni ekki skipa nýjan sendiherra.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, hafnar því að Samfylkingin muni tilnefna nýjan sendiherra, eins og kemur fram í frétt sem birtist á vef Morgunblaðsins í morgun. Hann telur að einhverjum heimildarmönnum Morgunblaðsins sé „mjög í mun að stilla málum upp á þann veg að Samfylkingin sé einhver gerandi í einhverri fléttu sendiherraskipana." Þar kemur fram að von sé á þriðju pólitísku skipuninni í sendiherrastarf á næstu dögum. Er þá vísað til þess að Geir H. Haarde, fyrrum ráðherra Sjálfstæðismanni, og Árni Þór Sigurðsson, þá sitjandi þingmaður Vinstri grænna, voru skipaðir sendiherrar í fyrradag. Árni Páll hafnar því að Samfylkingin muni tilnefna sendiherra. Hann segir á Facebook-síðu sinni: „Agnes Bragadóttir [blaðamaður Morgunblaðsins] hringdi í mig í gær og spurði hvort til stæði að Samfylkingin tilnefndi sendiherra. Ég kvað nei við því og upplýsti að við mig hefði aldrei verið rætt um neina sendiherraskipan. Hvernig hægt er að fá þessa útleggingu út úr því viðtali veit ég ekki, en einhverjum heimildarmönnum Morgunblaðsins er greinilega mjög í mun að stilla málum upp á þann veg að Samfylkingin sé einhver gerandi í einhverri fléttu sendiherraskipana. Svo er bara ekki. Enginn hefur rætt við mig um þetta - nema Agnes Bragadóttir.“ Post by Árni Páll Árnason.
Mest lesið Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Benedikt Sveinsson er látinn Innlent Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Innlent Brynjar segir af sér Innlent Senda vopnaða menn á svæðið Innlent Fleiri fréttir Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli „Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi „Engar líkur á öðru en að þau endi á að fá alþjóðlega vernd“ Sjálfstæðismenn í borginni vilja samræmd próf aftur Sjá meira