Handbolti

Arnar tekur aftur við ÍBV

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar sest aftur í þjálfarastólinn hjá ÍBV.
Arnar sest aftur í þjálfarastólinn hjá ÍBV. vísir/daníel
Arnar Pétursson verður næsti þjálfari ÍBV í Olís-deild karla í handbolta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV.

Arnar tekur við starfinu af Gunnari Magnússyni sem samdi nýverið við lið Hauka. Þeir stýrðu ÍBV í sameiningu á síðasta tímabili þegar Eyjamenn urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Arnar lét af störfum eftir síðasta tímabil eftir að hafa stýrt ÍBV frá árinu 2009.

Arnar er uppalinn Eyjamaður og lék með ÍBV um margra ára skeið. Hann lék einnig með Stjörnunni, FH og Haukum og varð tvívegis Íslandsmeistari með síðastnefnda liðinu.

Eyjamenn féllu úr leik fyrir Aftureldingu í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×