Handbolti

Arnar Freyr benti á föður sinn þegar hann skoraði: „Hann setti kröfur á mig“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar Freyr Arnarsson fagnaði mörkum sínum af innlifun í gær.
Arnar Freyr Arnarsson fagnaði mörkum sínum af innlifun í gær. vísir/getty
Arnar Freyr Arnarsson var einn þriggja nýliða sem þreytti frumraun sína með íslenska landsliðinu á stórmóti í gær þegar strákarnir okkar töpuðu á móti Spáni, 27-21, í fyrsta leik liðsins á HM 2017 í Handbolta.

Eftir frábæran fyrri hálfleik þar sem nánast allt gekk upp náði íslenska liðið ekki að fylgja því eftir í þeim síðari þar sem Spánverjar náðu átta marka sveiflu og unnu leikinn með sex mörkum. Arnar var sáttur með sína frammistöðu sem var frábær en vildi auðvitað sjá betri úrslit.

„Þetta var mjög gaman og er ástæðan fyrir því að maður er í þessu en úrslitin eru svekkjandi. Við erum í þessu til að vinna. Það er gaman að vera kominn inn og ég tel okkur geta bætt okkur mikið,“ sagði Arnar Freyr við Vísi eftir leikinn í gær.

Sjá einnig:Einkunnir strákanna okkar: Þrír með fjarka

„Fyrri hálfleikurinn var mjög góður fannst mér. Spánverjarnir eru með sterkt lið en mér fannst við vera hörku þéttir. Við getum klárlega byggt á þessum fyrri hálfleik.“

„Spánverjarnir eru góðir en þetta eru bara menn eins og við. Þeir eru að spila í bestum deildum heims og í bestu liðum í heims. Maður þarf bara að vera 100 prósent í þessu og ekki láta einhvern nöfn stoppa þig,“ sagði Arnar Freyr.

Blaðamaður Vísis tók eftir því að Arnar Freyr benti alltaf á ákveðinn stað upp í stúku þegar hann skoraði mörkin sín fjögur í leiknum. Á hvern var hann að benda?

Sjá einnig:Frábær frumraun Arnars Freys: Nýr Rússajeppi sem verður á línunni næstu fimmtán árin

„Pabbi minn var í stúkunni. Hann setti kröfur á mann þannig ég var bara að sýna honum að ég gæti þetta,“ sagði Arnar Freyr, en hvað vildi faðir hans sjá frá stráknum í leiknum?

„Hann vildi að ég væri ákáfur og ég væri ekki að láta einhvern nöfn stoppa mig. Hann vildi sjá mig fá boltann og skora. Það var það sem hann sagði við mig fyrir leikinn,“ sagði Arnar Freyr Arnarsson.


Tengdar fréttir

Nautabanarnir of sterkir í gær

Stórbrotin frammistaða strákanna okkar í fyrri hálfleik gegn Spáni í gær dugði því miður ekki til sigurs. Spænsku nautabanarnir voru einfaldlega of sterkir. Frammistaðan og viðhorf leikmanna lofar þó góðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×