Bílar

Árleg jeppasýning Toyota á laugardaginn

Finnur Thorlacius skrifar
Lagleg flóra jeppa frá Toyota.
Lagleg flóra jeppa frá Toyota.
Árleg jeppasýning Toyota Kauptúni verður að þessu sinni haldin í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Ellingsen laugardaginn 25. febrúar kl. 12:00 – 16:00. Þetta er áttunda árið í röð sem Toyota Kauptúni efnir til jeppasýningar og er sýningin fyrir löngu orðin fastur viðkomustaður jeppa- og útivistarfólks.

Á jeppasýningunni verður Hilux sýndur með nýjum Invincible aukahlutapakka sem fylgir öllum nýjum Hilux án aukakostnaðar. Kynnt verður tilboð á Adventure aukahlutapakkanum fyrir Land Cruiser 150 og sjá má RAV4 í fjölmörgum útfærslum. Breyttir jeppar verða á útisvæði og í sýningarsal. Ýmiss búnaður fyrir útivistina verður einnig á jeppasýningunni, t.d.  fjórhjól, sexhjól, Buggy bílar, fjallaskíði, Garmin GPS græjur og svo Brenderup kerrur til að flytja tækin.

Ferðafélag Íslands, sem á 90 ára afmæli í ár verður sérstakur gestur sýningarinnar ásamt samstarfsaðilum sínum. Ferðafélagið mun kynna starfsemi sína og saga félagsins verður rifjuð upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×