Fótbolti

Ari og Ragnar um húðflúrin: Sjúkdómur og heimskulegt áhugamál

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ari Freyr og Raggi Sig eru vel blekaðir.
Ari Freyr og Raggi Sig eru vel blekaðir. vísir/vilhelm
Ari Freyr Skúlason og Ragnar Sigurðsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi íslenska liðsins í Annecy í dag en varnarmennirnir tveir eru líklega blekuðustu menn liðsins eins og Blaz Roca myndi segja.

Þeir eru báðir með tattúermar og fleiri húðflúr um allan líkamann. Ari Freyr er til dæmis með íslenska fánann í skjaldamerkinu á vinstra lærinu eins og sást þegar forsetafrúin Dorrit Moussaieff hristi Ara til eftir jafnteflið gegn Portúgal í fyrsta leik.

Sjá einnig:Sjáðu blaðamannafund strákanna í heild sinni

Sænskur blaðamaður á fundinum spurði strákana út í flúrin og bjóst líklega við greinargóðum svörum en þau fékk hann ekki.

„Þetta er bara sjúkdómur. Ég byrjaði þegar ég var fimmtán ára og ég get ekki hætt. Ég er kristinn þannig annað þeirra tengist kristni. Annað er í japönskum litum og svo er ég með fleiri um allan líkamann,“ sagði Ari Freyr.

Ragnar útskýrði sín á mjög einfaldan hátt: „Þetta er bara heimskulegt áhugamál,“ sagði Ragnar Sigurðsson.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).





The First Lady preparing me for the next game #AS23 #totalfootball

A photo posted by Ari Skúlason (@ariskulason23) on


Tengdar fréttir

Heimir: Vitum að við eigum helling inni

"Menn taka eitt lítið feilspor. Það eru engar áhyggjur í sambandi við varnarleikinn okkar, alls ekki,“ segir Heimir Hallgrímsson.

Eiður Smári: Vil ekki að þetta hætti

"Þetta er eins og að fara í Disneyland í fyrsta skipti,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen um upplifun sína af EM í Frakklandi til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×