Fréttir

Fréttamynd

Borgin af­þakkar risaeðlubein

Borgarráð samþykkti í gær að afþakka hluta úr beinagrind af risaeðlu sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Með gjöfinni fylgir töluverður kostnaður.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heims­styrj­öldin

Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum.

Erlent
Fréttamynd

Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meiri­hluta

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028. 

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hluti bíður eftir greiningu í meira en ár

Í árslok 2025 var 2.651 barn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis kemur fram að meirihluti þeirra hafði þá beðið eftir þjónustu í meira en ár og um 11 prósent í meira en þrjú ár. Drengir voru almennt yngri en stúlkur á biðlista.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunar­efni

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað umleitan Alabama um að fá að taka fanga af lífi með köfnunarefni. Yfirvöldum í ríkinu hafði áður verið hafnað á tveimur lægri dómstigum, með þeim rökum að um væri að ræða brot gegn ákveðum stjórnarskrárinnar gegn grimmilegum og óvenjulegum refsingum.

Erlent
Fréttamynd

Mal­bika á Reykja­nes­braut í kvöld

Í kvöld, föstudagskvöldið 12. júní og aðfaranótt laugardags 13. júní, milli klukkan 21:00 og 07:00, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í suðurátt á 1.100 metra kafla frá Arnarnesvegi.

Innlent
Fréttamynd

Ætlar ekki að sitja undir á­sökunum um barna­níð

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir hefur stefnt Eldi Smára Kristinssyni Ísidóri fyrir héraðsdóm vegna ummæla hans um Uglu. Hún segir málið prófstein á það hvað megi og megi ekki í opinberri umræðu, hún segist ítrekað hafa óttast um öryggi sitt vegna orðræðu sem farið hafi harðnandi upp á síðkastið.

Innlent
Fréttamynd

Eldar í grillum og kveikt í rusla­gámi

Viðbragðsaðilum bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi um eld í grilli en í báðum tilvikum gekk greiðlega að slökkva og tjón var annað hvort ekkert eða minniháttar. Þá var tilkynnt um eld í ruslageymslu en þar leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða og er málið í rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina þar sem forsendur hennar séu brostnar. Starfsáætlun þingsins var kippt úr sambandi í dag þar sem enn á eftir að ljúka stórum málum.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í Ár­bænum

Eldur kviknaði í íbúð við Selásbraut í Árbæ í Reykjavík en reyndist hann minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Búið er að slökkva eldinn.

Innlent
Fréttamynd

Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins

Guðmundur Andri telur ekki rétt að kalla ágreining sem undanfarið hefur myndast innan raða Samfylkingarfólks klofning. Hann segist þó halda að nýleg stefnubreyting, kröpp hægri beygja, hafi ekki verið nægilega mikið rædd á vettvangi flokksins. Guðmundur er einn þeirra sem skrifuðu undir skoðanapistil þar sem hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Eld­fim staða, sorg­legt á­huga­leysi og ráð­gáta

Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar kreddum um verð­bólguna

Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir í uppbótartíma

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir ólíklegt að þinglok verði á morgun eins og til stóð samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hún vill ekki fullyrða hvort náist að samþykkja samgönguáætlun á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Bretar sam­þykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu

Yfirvöld í Bretlandi eru þau fyrstu í Evrópu til að samþykkja sölu þyngdarlosunarlyfsins Wegovy í pilluformi. Lyfið er framleitt af danska fyrirtækinu Novo Nordisk en hingað til hafa neytendur þurft að sprauta því í sig.

Erlent