Fréttir

Fréttamynd

Marius sleppur ekki eftir allt saman

Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðaseggir í Belfast muni verða sóttir til saka. Óöldin sem þeir ollu í borginni sé sjokkerandi og með öllu ólíðanleg. Ekkert geti réttlætt ofbeldi og það hvernig ýtt var undir óeirðirnar á netinu og annarsstaðar.

Erlent
Fréttamynd

Skúrir víða um land og lægð nálgast austur­strönd

Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land.

Veður
Fréttamynd

Ó­eirðir í Belfast eftir hnífstungu

Til óeirða kom í nótt í Belfast á Norður-Írlandi þar sem kveikt var í húsum, bílum og strætisvögnum í kjölfar mótmæla gegn innflytjendum. Hópar grímuklæddra manna eru sagðir hafa farið um hverfi borgarinnar og prestur í norðurhluta hennar segir að sérstaklega hafi verið ráðist að heimilum svartra í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Stefna á að opna kaffi­stofuna síðar í þessum mánuði

Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt

Donald Trump tilnefndi í gær formlega Todd Blanche til embættis dómsmálaráðherra. Blanche hefur um nokkuð skeið starfað sem starfandi ráðherra, síðan Trump rak Pam Bondi, en á þeim tíma hefur hann þótt umdeildur í starfi og verið sakaður um að hegða sér eins og hann sé ennþá einkalögmaður forsetans.

Erlent
Fréttamynd

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

Innlent
Fréttamynd

Olíu­mengun í Kópavogslæk

Olíumengun í Kópavogslæk hefur vakið athygli íbúa í bænum. Einn þeirra segir það ekki í fyrsta skipti sem einhvers konar mengun berst í lækinn.

Innlent
Fréttamynd

No Borders hvetja til and­spyrnu gegn brottfararstöð

„Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks.

Innlent
Fréttamynd

Hring­braut eins og rúss­nesk rúlletta

Íbúi við Hringbraut í Reykjavík hefur ekki lengur tölu á alvarlegum slysum sem hún hefur séð við götuna og segir Hringbraut í núverandi mynd vera líkt og rússnesk rúlletta. Hún segir aðeins eitt til ráða við akstri óábyrgra ökumanna.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tekinn á bíl með nagladekkjum

Ökumaður var handtekinn í Árbæ fyrr í dag fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði þegar verið sviptur ökuréttindum auk þess sem bíllinn var búinn nagladekkjum og án númera. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er hreinn upp­spuni“

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV.

Innlent