Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Starfshópur um risaeðlur fundaði átta sinnum yfir þriggja ára tímabil til að meta hvort Reykjavíkurborg ætti að taka við risaeðlubeinum að gjöf. Framkvæmdastjóri samtakanna Leap Lab vildi gefa Reykjavík beinin í nafni móður sinnar, sem er íslensk. Innlent 12.6.2026 15:02
Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. Innlent 12.6.2026 14:48
Kviknaði í raftæki Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var ræst út upp úr klukkan 13 í dag vegna útkalls um eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Innlent 12.6.2026 14:38
Eldur kviknaði í Toppstöðinni Slökkviliðsmenn voru ræstir út upp úr klukkan 13 í dag vegna útkalls um eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Þeir hafa slökkt eldinn. Innlent 12.6.2026 13:20
„Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Veðrið mun leika við landsmenn víðast hvar um helgina en í morgun mældist hitinn á Patreksfirði sautján stig. Veðurfræðingur segir engum blöðum um það að fletta að sumarið sé komið og forstöðumaður sundlaugar á von á að gestir leggi undir sig sólbekkina í dag. Innlent 12.6.2026 13:16
Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Tæplega þrjátíu manns komu saman á Austurvelli í hádeginu til að mótmæla samráðsleysi stjórnvalda við Grindavíkinga. Þau telja skilyrði hollvinasamnings Þórkötlu óboðleg. Innlent 12.6.2026 12:46
Kaninn pakkar saman í Evrópu Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tilkynnt bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu að til standi að fækka töluvert herþotum, flugvélum og herskipum í Evrópu. Um er að ræða hersveitir sem tekið hafa þátt í aðgerðum NATO í gegnum áratugina og stendur meðal annars til að fækka orrustuþotum í Evrópu um þriðjung. Erlent 12.6.2026 12:44
Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hélt í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún segir dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. Innlent 12.6.2026 12:02
Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Landsréttur sýknaði föður af ákæru um að hafa reynt að reka tungu sína upp í dóttur sína. Maðurinn hafði áður verið sýknaður af öðrum ákæruliðum um kynferðisbrot gegn stúlkunni sem var sjö ára þegar atvikið átti sér stað. Innlent 12.6.2026 11:52
Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Í hádegisfréttum heyrum við í formönnum þingflokka á Alþingi en seint í gærkvöldi náðist samkomulag um þingfrestun í sumar. Innlent 12.6.2026 11:37
Borgin afþakkar risaeðlubein Borgarráð samþykkti í gær að afþakka hluta úr beinagrind af risaeðlu sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Með gjöfinni fylgir töluverður kostnaður. Innlent 12.6.2026 10:45
Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum. Erlent 12.6.2026 10:32
Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Íslandsdeild Amnesty International telur nýsamþykkt lög um brottfararstöð áhyggjuefni fyrir mannréttindavernd hérlendis. Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu varðandi samþykkt laganna í dag. Innlent 12.6.2026 10:29
Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Spáð er blíðskaparveðri sunnan- og vestantil á landinu í dag. Samkvæmt spá Veðurstofunnar mun hiti ná nítján gráðum í Reykjavík síðdegis. Innlent 12.6.2026 10:21
Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Flugmaður hjá Icelandair segir nýtt tilboð félagsins í kjaradeilu við flugmenn fela í sér meira vinnuálag, minni vernd í kringum hvíld og launalækkanir. Hann segir deiluna ekki snúast um kröfu flugmanna um hærri laun, heldur hvort þeir geti yfirhöfuð ráðið við álagið til lengri tíma. Innlent 12.6.2026 10:14
Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Vinna er hafin innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við að breyta lögum um fjölmiðla. Ein helsta fyrirhugaða breytingin er að hlaðvörp verða ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Þannig virðast hlaðvarparar hafa unnið stríðið við Fjölmiðlanefnd, sem geisað hefur um nokkur misseri. Innlent 12.6.2026 10:07
Búið að semja um þinglok Formenn þingflokka komust að samkomulagi seint í gærkvöldi um hvaða mál verði afgreidd áður en Alþingi fer í sumarfrí. Þing heldur áfram eftir helgi. Innlent 12.6.2026 10:00
Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Landsréttur sýknaði ungan mann sem var ákærður fyrir að nauðga kærustu sinni á meðan hún svaf. Maðurinn hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði. Innlent 12.6.2026 09:43
Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Ming Ting Mancel, sem hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar, er mætt í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún gerði enga tilraun til að hylja sig þegar hún gekk inn. Innlent 12.6.2026 09:37
Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028. Innlent 12.6.2026 08:43
Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Í árslok 2025 var 2.651 barn á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Í nýjum Talnabrunni embættis landlæknis kemur fram að meirihluti þeirra hafði þá beðið eftir þjónustu í meira en ár og um 11 prósent í meira en þrjú ár. Drengir voru almennt yngri en stúlkur á biðlista. Innlent 12.6.2026 08:11
Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað umleitan Alabama um að fá að taka fanga af lífi með köfnunarefni. Yfirvöldum í ríkinu hafði áður verið hafnað á tveimur lægri dómstigum, með þeim rökum að um væri að ræða brot gegn ákveðum stjórnarskrárinnar gegn grimmilegum og óvenjulegum refsingum. Erlent 12.6.2026 08:05
Malbika á Reykjanesbraut í kvöld Í kvöld, föstudagskvöldið 12. júní og aðfaranótt laugardags 13. júní, milli klukkan 21:00 og 07:00, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í suðurátt á 1.100 metra kafla frá Arnarnesvegi. Innlent 12.6.2026 07:22
107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Árið 2024 voru skráðar 4.299 fæðingar á Íslandi, þar af 141 fæðing á Björkinni og Fæðingarheimili Reykjavíkur og 107 heimafæðingar. Þá er talið að sjö fæðingar hafi átt sér stað heima án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks. Innlent 12.6.2026 07:11