Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Barn réðst með belti á önnur börn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar líkamsárás barns á tvö önnur börn í strætóskýli í Hlíðunum í gær. Barnið er talið hafa beitt belti við árásina.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meið­yrða­mál

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Elju starfsmannaþjónustu vegna dóms Landsréttar í máli sem til kom vegna ummæla Hjálmars Friðrikssonar blaðamanns í frétt á Samstöðinni. Ummælin voru í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023 en í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“

Innlent
Fréttamynd

Virkjunar­leyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga.

Innlent
Fréttamynd

Tóku á­kvörðun um að skrá fólk úr flokknum

Nýkjörinn formaður Sósíalistaflokksins segir framkvæmdastjórn flokksins hafa tekið ákvörðun um að skrá félaga úr flokknum. Þeir sem vinni gegn flokknum eigi ekkert erindi á aðalfund. Varaformaður segir stjórnina hafa fylgt flokksreglum við skipulagningu aðalfundar. Það sé ekki þeirra vandamál að upplýsa fólk um að það hafi verið rekið úr flokknum. 

Innlent
Fréttamynd

Eigin­maðurinn fékk krabba­meinið sem hún hræddist mest

Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans. Ekki er talið um „brýna nauðsyn“ að ræða. Eiginkona Jóns Atla segir þau þegar búin að tapa dýrmætum tíma í baráttu sinni og óttast að börnin þeirra missi föður sinn fyrr en þau þurfa fái hann ekki aðgang að meðferðinni.

Innlent
Fréttamynd

Ferðum Ís­lendinga til út­landa fækkar

Frá áramótum hafa brottfarir Íslendinga verið um fimmtíu og níu þúsund, en það eru 11 prósent færri brottfarir en í maí síðasta árs. Samkvæmt nýjustu tölum Ferðamálastofu voru um hundrað sextíu og þrjú þúsund brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli í maí. Það er svipaður fjöldi og í sama mánuði í fyrra. 

Innlent
Fréttamynd

Hvetur al­menning til að vera á varð­bergi

Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar segir undirbúning hafinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún hvetur almenning til að vera vakandi fyrir erlendum aðilum sem reyna að hafa áhrif á umræðuna í aðdraganda kosninganna. Um áhyggjuefni sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

Náttúruminjasafn og Náttúru­fræði­stofnun renna saman

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar.

Innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin beri á­byrgð á hindrunum Þór­kötlu

Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað.

Innlent
Fréttamynd

Nýttu tak­markanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina

Hvorki Isavia né Samgöngustofa settu það í forgang að takmarka röskun á sjúkraflugi þegar flugbraut Reykjavíkurflugvallar var lokað tímabundið vegna trjágróðurs í Öskjuhlíð í fyrra. Ríkisendurskoðun telur báðar stofnanir hafa þvert á móti nýtt takmarkanirnar til þess að knýja fram aðgerðir af hálfu borgaryfirvalda.

Innlent
Fréttamynd

Rússar víg­búast við mörk Norður­landa

Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum.

Erlent
Fréttamynd

Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla há­vaðann seinna

Verkfræðingum, vísindamönnum og flugmönnum Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tókst í síðustu viku að fljúga flugvél hraðar en hljóðið ferðast. Næst á að fljúga tilraunaþotunni X-59 enn hraðar og síðan á að staðfesta að það geri flugvélin án hinna hefðbundnu láta sem fylgja því að rjúfa hljóðmúrinn.

Erlent
Fréttamynd

Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi

Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar.

Innlent