Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Gegnum­gangandi bongó um helgina“

Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun.

Veður
Fréttamynd

Felldi loks tár þegar and­lát eigin­mannsins var rætt

Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, felldi fyrst tár við skýrslutöku fyrir dómi þegar hún var spurð út í andlát eiginmanns síns. Áður hafði hún lýst því hvernig eiginmaður hennar stakk dóttur hennar í hjartað, án þess að skipta skapi, svo athygli viðstaddra vakti.

Innlent
Fréttamynd

„Af hverju má ég vera í Hvera­gerði en Grind­víkingar ekki í Grinda­vík?“

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin verði að koma til móts við Grindvíkinga sem eru margir ósáttir við nýja hollvinasamninga sem fasteignafélagið Þórkatla kynnti á dögunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna félagið vilji takmarka dvöl Grindvíkinga í bænum við tólf nætur í senn.

Innlent
Fréttamynd

Hittust átta sinnum til að úr­skurða um risaeðlubeinin

Starfshópur um risaeðlur fundaði átta sinnum yfir þriggja ára tímabil til að meta hvort Reykjavíkurborg ætti að taka við risaeðlubeinum að gjöf. Framkvæmdastjóri samtakanna Leap Lab vildi gefa Reykjavík beinin í nafni móður sinnar, sem er íslensk.

Innlent
Fréttamynd

Bólar ekkert á á­lyktun ungra mið­flokks­manna

Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs.

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði í raf­tæki

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var ræst út upp úr klukkan 13 í dag vegna útkalls um eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi

Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára. 

Innlent
Fréttamynd

Dregur um­deildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka

Tvær umdeildar skýrslur um hið svokallaða Havana-heilkenni hafa verið dregnar til baka. Tulsi Gabbard, fráfarandi yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, segir skýrslurnar ekki hafa staðist greiningarstaðla en þar var því haldið fram að hin dularfullu áratugsgömlu veikindi tengdust ekki aðgerðum eða árásum óvina.

Erlent
Fréttamynd

Stað­festa synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn Jóns Atla Magnússonar um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Eiginkona hans segir baráttu þeirra þó ekki lokið. Um sé að ræða réttlætismál fyrir alla sem greinast með þetta banvæna krabbamein. 

Innlent
Fréttamynd

Facebook lá niðri

Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri í um klukkustund síðdegis í dag, samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector.

Erlent
Fréttamynd

Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum

Íbúar Ísafjarðarbæjar eiga von á tveimur skemmtiferðaskipum í dag með allt að 8000 farþegum. Annað skipanna er það stærsta sem hefur komið til hafnar á Ísafirði en skipið kom þangað í sína fyrstu heimsókn árið 2023. Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir fjölda bókana vera að taka við sér eftir lækkun innviðagjalds. Bærinn eigi von á tæplega 200 þúsund ferðamönnum í sumar. 

Innlent
Fréttamynd

„Við getum al­veg full­yrt það að sumarið sé komið“

Veðrið mun leika við landsmenn víðast hvar um helgina en í morgun mældist hitinn á Patreksfirði sautján stig. Veðurfræðingur segir engum blöðum um það að fletta að sumarið sé komið og forstöðumaður sundlaugar á von á að gestir leggi undir sig sólbekkina í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Kaninn pakkar saman í Evrópu

Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tilkynnt bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu að til standi að fækka töluvert herþotum, flugvélum og herskipum í Evrópu. Um er að ræða hersveitir sem tekið hafa þátt í aðgerðum NATO í gegnum áratugina og stendur meðal annars til að fækka orrustuþotum í Evrópu um þriðjung.

Erlent
Fréttamynd

Borgin af­þakkar risaeðlubein

Borgarráð samþykkti í gær að afþakka hluta úr beinagrind af risaeðlu sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Með gjöfinni fylgir töluverður kostnaður.

Innlent
Fréttamynd

Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heims­styrj­öldin

Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum.

Erlent