Virkjunarleyfi vegna Hvammsárvirkjunar fær grænt ljós Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga. Innlent 10.6.2026 14:48
Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Nýkjörinn formaður Sósíalistaflokksins segir framkvæmdastjórn flokksins hafa tekið ákvörðun um að skrá félaga úr flokknum. Þeir sem vinni gegn flokknum eigi ekkert erindi á aðalfund. Varaformaður segir stjórnina hafa fylgt flokksreglum við skipulagningu aðalfundar. Það sé ekki þeirra vandamál að upplýsa fólk um að það hafi verið rekið úr flokknum. Innlent 10.6.2026 14:28
Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans. Ekki er talið um „brýna nauðsyn“ að ræða. Eiginkona Jóns Atla segir þau þegar búin að tapa dýrmætum tíma í baráttu sinni og óttast að börnin þeirra missi föður sinn fyrr en þau þurfa fái hann ekki aðgang að meðferðinni. Innlent 10.6.2026 13:46
Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökunum Járngerði sem skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þegar í stað. Innlent 10.6.2026 12:01
Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Ríkisendurskoðun telur innleiðingu farsældarlaga um samþættingu þjónustu við börn ekki hafa verið nægilega vel undirbúna og að hópar barna með fjölþættan og vímuefnavanda skorti enn þjónustu því meiri áhersla hafi verið lögð á samvinnu en að bæta úrræði. Innlent 10.6.2026 11:42
Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Hvorki Isavia né Samgöngustofa settu það í forgang að takmarka röskun á sjúkraflugi þegar flugbraut Reykjavíkurflugvallar var lokað tímabundið vegna trjágróðurs í Öskjuhlíð í fyrra. Ríkisendurskoðun telur báðar stofnanir hafa þvert á móti nýtt takmarkanirnar til þess að knýja fram aðgerðir af hálfu borgaryfirvalda. Innlent 10.6.2026 11:40
Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fjölskyldur sem höfðu hugsað sér að snúa til baka til Grindavíkur hafa hætt við vegna ákvörðunar fasteignafélagsins Þórkötlu um að takmarka gistiheimildir í bænum. Innlent 10.6.2026 11:37
Fleiri andvígir inngöngu í ESB Meirihluti þeirra sem taka afstöðu í nýrri skoðanakönnun eru andvígir aðild Íslands að Evópusambandinu. Innlent 10.6.2026 11:25
Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum. Erlent 10.6.2026 11:16
Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Verkfræðingum, vísindamönnum og flugmönnum Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tókst í síðustu viku að fljúga flugvél hraðar en hljóðið ferðast. Næst á að fljúga tilraunaþotunni X-59 enn hraðar og síðan á að staðfesta að það geri flugvélin án hinna hefðbundnu láta sem fylgja því að rjúfa hljóðmúrinn. Erlent 10.6.2026 11:10
Þorsteinn Ólafsson er látinn Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri. Innlent 10.6.2026 11:08
Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar. Innlent 10.6.2026 11:04
Marius sleppur ekki eftir allt saman Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað. Erlent 10.6.2026 10:19
Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðaseggir í Belfast muni verða sóttir til saka. Óöldin sem þeir ollu í borginni sé sjokkerandi og með öllu ólíðanleg. Ekkert geti réttlætt ofbeldi og það hvernig ýtt var undir óeirðirnar á netinu og annarsstaðar. Erlent 10.6.2026 10:18
Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Frá 1. janúar 2024 til 31. maí 2026 lauk 64 eftirlitsmálum á lækna og tannlækna vegna lyfjaávísana. Einu máli lauk með takmörkun á starfsleyfi. Innlent 10.6.2026 10:03
Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við. Innlent 10.6.2026 10:03
Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Ísland er nítjánda árið í röð friðsælasta land heims samkvæmt greiningu áströlsku stofnunarinnar Institute for Economics and Peace, IEP. Stofnunin hefur gefið út frá árinu 2007 skýrslu þar sem hún greinir friðsælustu ríki heims og þau ríki þar sem mestur ófriður ríkir. Erlent 10.6.2026 09:08
Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Varðberg, pólska sendiráðið á Íslandi og utanríkisráðuneytið standa í dag að málþingi í Norræna húsinu, þar sem fjallað verður um um öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu. Ísland tekur í júlí við formennsku í Eystrasaltsráðinu (CBSS) af Pólverjum. Innlent 10.6.2026 08:32
Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, skorar á forsætisráðherra, ríkisstjórn og þingmenn að leysa úr búsetumálum Grindvíkinga fyrir sumarfrí þingsins. Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti íbúum í síðustu viku sem eru með hollvinasamning að frá og með haustinu yrðu gistiheimildir þeirra takmarkaðar og íbúar þyrftu að tilkynna hvenær þeir gista. Innlent 10.6.2026 07:50
Eldhúsdagur runninn upp Þingfundur á Alþingi stóð fram til klukkan hálftíu í gærkvöldi þar sem mestu púðri var eytt í umræður um samgönguáætlun eftir að frumvarp um brottfararstöð svokallaða var samþykkt í gærdag. Innlent 10.6.2026 07:40
Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Í kvöld, miðvikudagskvöldið 10. júní og aðfaranótt fimmtudags 11. júní, milli kl. 21:00 og 07:00, verður unnið við fræsingu og malbikun á Reykjanesbraut í suðvesturátt meðfram Smáralind. Innlent 10.6.2026 07:35
Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land. Veður 10.6.2026 07:15
Tryggvi Gíslason er látinn Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er látinn, 87 ára að aldri. Innlent 10.6.2026 07:13
Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Að minnsta kosti tólf eru látnir og níu særðir eftir skotárás í Cleveland, úthverfi Jóhannesarborgar í Suður-Afríku, í gærkvöldi. Samkvæmt lögreglu var árásin framkvæmd að tíu eða fleiri einstaklingum. Erlent 10.6.2026 07:06