Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Dómsmálaráðherra segir samþykkt Alþingis á frumvarpi sínu um brottfararstöð ekki kalla fram sigurtilfinningu. Með stöðinni sé Ísland að uppfylla sínar skuldbindingar en á sama tíma sé úrræðið íþyngjandi ráðstöfun. Innlent 10.6.2026 00:01
Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Þjóðvegasjoppan íslenska er loksins að fá sinn sess í menningarsögu landsins. Á Verslunarminjasafninu á Hvammstanga er heil sjoppa að bætast í flokk safngripa og kannski ein sú merkasta á landinu. Innlent 9.6.2026 23:40
Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Lítilli einkaflugvél hlekktist í lendingu á flugvelli Egilsstaða fyrr í dag með þeim afleiðingum að hjól brotnaði. Flugmaðurinn er óhultur. Innlent 9.6.2026 23:14
No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks. Innlent 9.6.2026 20:28
Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Íbúi við Hringbraut í Reykjavík hefur ekki lengur tölu á alvarlegum slysum sem hún hefur séð við götuna og segir Hringbraut í núverandi mynd vera líkt og rússnesk rúlletta. Hún segir aðeins eitt til ráða við akstri óábyrgra ökumanna. Innlent 9.6.2026 18:56
Handtekinn á bíl með nagladekkjum Ökumaður var handtekinn í Árbæ fyrr í dag fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði þegar verið sviptur ökuréttindum auk þess sem bíllinn var búinn nagladekkjum og án númera. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu. Innlent 9.6.2026 18:29
„Þetta er hreinn uppspuni“ Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV. Innlent 9.6.2026 18:06
Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð Tjón vegna netbrota hljóp á sex hundruð milljónum króna á síðasta ári og fjöldi brotanna fjórfaldaðist milli ára. Hvað veldur slíkum afköstum hjá netþrjótum? Þeir nota gervigreindarforrit til að auðvelda sér verkið. Innlent 9.6.2026 18:00
„Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ „Þar sem ég er í námi í Manchester hef ég fengið að kynnast Uber og þeirra starfsháttum,“ segir Már Gunnarsson í samtali við fréttastofu. „Ég vona af öllu hjarta að það fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi.“ Innlent 9.6.2026 17:59
Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjahers. Það sé nauðsynlegt að bregðast við árásinni. Erlent 9.6.2026 17:35
Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Hættulegt sníkjudýr hefur greinst í Texas og Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum og óttast Bandaríkjamenn að afleiðingarnar fyrir nautgriparækt þar geti orðið gífurlega alvarlegar. Um er að ræða flugu sem leggur egg í lifandi hold og étur það en áratugir eru síðan flugunni var útrýmt í Bandaríkjunum með því að nota geislavirkar flugur af sömu tegund. Erlent 9.6.2026 16:44
„Mjög venjulegt sumarveður“ Úrkomuna, sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga, segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, vera „mjög venjulegt sumarveður“ í samtali við Vísi. Veður 9.6.2026 16:23
Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. Innlent 9.6.2026 16:08
Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Fimm karlmenn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir eru grunaðir um að hafa staðið að innflutningi kókaíns og amfetamíns með Norrænu. Innlent 9.6.2026 16:05
Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi. Innlent 9.6.2026 16:00
Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Öll spjót standa nú á Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, vegna ætlaðra hagsmunaárekstra, frændhygli og spillingar. Málin tengjast meðal annars samtökum eiginkonu Kristersson og systur hennar. Erlent 9.6.2026 15:53
Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Icelandair hefur ákveðið að hætta flug til milli Íslands og Kulusuk á austurströnd Grænlands utan sumarmánuðanna. Frá og með áramótum verður aðeins flogið milli maí og október. Innlent 9.6.2026 14:55
Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum Rúv. Innlent 9.6.2026 14:53
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Innlent 9.6.2026 14:09
Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, flutti í dag árlega ræðu sína á Alþingi um ósk hans um að listaverkið Svarta keilan, sem stendur við þinghúsið, verði fjarlægð. Hann kveðst ekki hafa trú á öðru en að nýr meiri hluti borgarstjórnar láti verða af því. Innlent 9.6.2026 13:52
Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð. Innlent 9.6.2026 13:52
Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Stofnað hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Thomsen Kárasonar. Bergur Ottó fæddist 17. febrúar síðastliðinn en lést sviplega á laugardagsmorgun. Innlent 9.6.2026 13:48
Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Landsréttur staðfesti í gær að Hannes Valle Þorsteinsson sæti áfram gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots gegn barni á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Innlent 9.6.2026 13:48
Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi. Innlent 9.6.2026 13:16